Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Ævintýri enn gerast...

t169seanymph

Hæ......

Stundum þarf maður að skríða áður en maður getur flogið.

En mikið svakalega er gott þegar vængirnir þorna eftir lirfustigið og maður getur loks tekið flugið og notið alls sem var falið í því sem var ósýnilegt.  Fiðrildi á tveimur jarðbundnum fótum syngur ykkur söng á sínu eigin máli.

Flirr flirr flirrWhistlingWhistlingWhistling

528555852_8db5271c63

Fly me to the full moon....Kissing

Þó það sé hellidemba hér og allt á floti í Bretlandi er sólskin hjá mér.

Það hefur stytt upp og útsýnið er svoooo gott!!!

200446781-001

Er jafnvel að hugsa mér til hreyfings og flytja á eyju.

Ekki samt Ísland.

 


Bless

the end

Andlegur svimi

526228494_ce3ca9f144

Andlegur svimi og lífsins dropi loks í öruggri höfn.

Hvað dvelur í dropanum mikla sem vildi sitt pláss kemur svo bara í LJÓS!

Ekkert smá sem getur tekið á að koma einum dropa á sinn stað

 sem ber í sér vökvunina fyrir þyrsta sál.

Velkomin dögg

og það sér ekki högg

á vatni

Gárur sem enginn veit hvar enda

eða lenda.

Nema þú!

surrender

Ég gefst upp 

 stíflan brestur

og út kemur hestur

á þeysireið.

Og ég leggst niður og les úr skugganum ljósið í lífinu.

 


Með alvarlega bloggteppu...

ARV-076

Svo sem ekkert meira um það að segja.

520280788_268a4d3d4a

Gratzia plena


info@morningmessages.com

MM_larger_poster3

Yndisleg síða til að skoða.

 


Töfrar stíga dans á ósýnilegu leiksviði

untitledhs

Lífið leikur fyrir dansi og töfrandi tónar framkalla dansandi menn og konur sem eru að byrja að skilja töfrabrögðin. Galdurinn sem felst í því að upplifa og vera til. Að draga frá tjöldin sem huldu snilldarverkið á sviði  alls sem er. Að lífið er ævintýri samruna, skilnings og samkenndar. Hjörtu sem slá i takt við pláneturnar, alheimstóninn og röddina þína.

Taktur sem tifar í gegnum tímann og inn í þig.

ljlklkl

Ég er miðjan og sé allt um kring.

 Og allt umvefjandi verundin sér mig og þig sem eitt.

Takturinn og tifið. 

Tárið sem telur taktinn í veröld sem snýst hraðar en nokkru sinni fyrr.

Dansaðu!

 


Þurfti að fara mikilvæga ferð til að leiðrétta hluti....sem ekki er hægt að blogga um

.........en skiluðu að ég held samt sínu.

Stundum er lífið þannig lagað að það má ekki og á ekki að tala um það upphátt.

 Þó það sé kannski magnificent!

218809

Þegar stöðluð munstur jarðar hitta fyrir opnun himinsins.

Og skilningurinn vaknar um hvað lífið er raunverulega.

 Að andinn hittir loks efnið og skilur hvað er hvað.

 Að hugarfarið er fjötur nema það skili jákvæðri tilfinningu og leysi efnið undan ánauð þess að trúa að ekkert sé gott.

 Að Það sem ekki er heilt geti ekki orðið heilt.

En þannig er samt lífið...það sem má laga verður lagað.

hkgu

Útsýnið skiptir öllu máli..hvað sérð þú út um glugga sálar þinnar?

Opnun eða lokun?

 Hvert er útsýnið? 

 Skiptir öllu máli um hvernig lífið verður og hvað þú sérð þar akkúrat núna.

Það sem þú sérð núna er það sem mætir þér í framtíðinni.

untitledjlkh

Megi það vera Jafnvægi.

Jafnvægi líkama og sálar.

Konu og karls.

Ungdómsins og hins aldna

Mín og þín.

Himins og jarðar.

 


Ferðalag 44 ára konu og 9 ára málverks

Þó ég sé enn í bloggpásu má kona ekki láta hjá líða að fagna áföngum í lífi sínu og það ætla ég sko að gera. Hef verið alltof áhugalaus um að njóta áfangastaðanna í lífinu en nú er tímabært að fara að haga sér.

Fyrir  níu árum fékk ég undarlega en mjög sterka hugmynd í kollinn. Out of nowhere datt sú hugmynd í kollinn á mér að halda upp á 35 ára afmælið mitt og gera það á eftirminnilegan hátt fyrir sjálfa mig. Þetta væru á einhvern hátt tímamót í mínu lífi. Bara svona innri tilfinning sem var fyrst lítill neisti sem varð svo að miklu báli og engin bönd héldu konu. Gamall draumur sem lét á sér bæra og kvað sér hljóðs með látum. Ég ætlaði að halda málverkasýningu því ég vildi verða listakona. Húsmóðir með 4 börn og hafði aðeins dundað sér við málun einstaka sinnum eyddi öllum matarpeningum fjölskyldunnar og keypti  striga og pensla ásamt olíumálningu , rýmdi eitt barnaherbergið og setti upp sitt einkastúdíó. Fór svo á stúfana og fékk inni í Listhúsinu í Laugardal. Þar skyldi haldið uppá afmælið 13. júní 1998 með einkasýningu og partýi fyrir vini og vandamenn.

Maður veit aldrei hvernig dropinn gárar vatnið

404061948_bcd370cd30

Vandamálið var hins vegar það að engin málverk voru enn til...en hva. Það má öllu redda þegar það brennur eldur hið innra og gleymdur draumur rís upp í öllu sínu veldi. Húsmóður reiknaðist til að það þyrfti 25 olíumálverk til að fylla plássið og hafðist handa daga og nætur enda aðeins rúmlega tuttugu og eitthvað dagar til stefnu. Það var eins og opnað hefði verið fyrir gátt og kona málaði með höndum og koddaverum, penslum og spöðum og þegar síðustu málverkin voru hengd upp kvöldið fyrir opnun voru þau enn blaut og reyndar nýfædd inn í þessa veröld.

Stundum heldur maður af stað án þess að vita áfangastaðinn

með bjartsýnina eina að ferðafélaga.

528064319_7cbc261c5a

Í dag eru akkúrat níu ár síðan..hinum merkilega níu ára hring lokið og á morgun hefst nýtt upphaf og nýr níu ára hringur sem ég hef ekki hugmynd um hvað ber í sér.  Á sl. níu árum hef ég tekið 4 ára skúlptúr nám hér í Englandi. Flutti með mér alla familíuna svo húsmóðir mætti láta drauminn sinn rætast...þaðan lá leið til Oxford til að taka Master í Art and Humanity á sérsviði social sculpture. Inn á milli læddust einnig margir kúrsar um mannlega verund, heilun og draumlíf mannsins. Orkusvið og vísindi. Og hér er ég á lokasprettinum og tilbúin þegar ég opna augun á morgun fyrir næsta kafla.

 Það sem er svo spennandi við hann er að ég veit eiginlega ekkert hvað bíður. Er bara tilbúin að taka næsta stökk og sjá hvað bíður handan við hornið..en það er eftirvænting í hjartanu og hugurinn fullur af stórum hugmyndum.

Í morgun barst mér svo kærkomin gjöf frá íslandi.

Málverk sem einhver keypti 1998 á húsmóðursýningunni og hafði greinilega farið í sitt einkaferðalag og endaði í Kolaportinu þar sem systir mín sá hana fyrir algera tilviljun í síðustu viku og keypti til að gefa mér í afmælisgjöf níu árum síðar.  Mér fannst þetta alveg meiriháttar.

"Hvar hefurðu verið elskan" sagði ég við hana..."Er ekki gott að vera aftur komin heim til mömmu?"

 Lærði líka að allt sem maður sendir frá sér fær maður aftur í hausinn. Allt sem fer að heiman kemur á endanum aftur heim. Gott að hafa það í huga..ha?

Myndin heitir Skógargyðjurnar og núna bý ég einmitt við skóginn og fer í skógargöngu hvern morgun að eiga stund með skógargyðjunum mínum...Skyldi eitthvað innra með mér hafa vitað það fyrir níu árum hvert leið mín myndi liggja?

100_3001

Verið velkomnar heim skógargyðjur mínar

Merkilegt ferðalag sem þið hafið verið á sl níu ár upp á dag.

Mikið vildi ég vita söguna ykkar.

En svona er nú lífið oft skrítið og skemmtilegt.

Ég tek opnum örmum við næsta tímabili í lífinu.

Það verður fróðlegt að vita hvað lífið bíður með fyrir mig næstu níu árin og hvað mun bíða mín eftir þann níu ára hring sem ég er að skapa núna.

Ég óska sjálfri mér til hamingju með mín 44 ár miðvikudaginn 13. júní.

 Og ég er rétt að byrja.Kissing

 


Að spara tímann...

spara tíma

......og nota hann vel.

Það er mikið að gera hjá mér þessa dagana og þess vegna verður smá hlé á bloggi.

 Ætla að safna mér þúsund stundum í tímabaukinn.

Jafnvel þó ég viti að tíminn sé bara blekking þá þarf ég hann samt núna.

Megið þið eiga góðar stundir öll sömul.

 


Elsku gamla góða litabók

263607679_e87f3c2ca5

Hvað gerist þegar tvær vitrar uglur leggja saman tvo plús tvo og fá út litróf lífsins?

Segja..."Jæja núna er það þitt val að velja lit og vera liturinn.

Hvaða lit myndir þú þá velja"?

299200021_f1a08440a1

Einhvern heimagerðan..eða....

498394852_89a3c6b8f7

einhvern náttúrulegan?

Er lífið kannski bara eins og litabók?

Búið að gera útlínurnar en í okkar valdi að velja litina sem við notum til að lita með?

Og ef það er svoleiðis...hver gerði þá útlínurnar?

200514583-001

Bara smá forvitni.

Teiknar maður kannski myndina sjálfur í þeim tilgangi að minna sig á?

 Litina í manni sjálfum.

 


Næsta síða »

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 310875

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband