Leita í fréttum mbl.is

Bara rjúkandi grænmetissúpa getur bjargað þessum degi!

2400-1314

Þegar það haustar og næðingurinn hefur ekki í sér neina hlýju og sendir manni tóninn með vini sínum vindinum, kælir í manni blóðið og beinin er bara eitt að gera. Rjúkandi grænmetissúpu. Með brokkoli og baunum, kartöflum, laukum og gulrótum. Kjötbita og kryddi að hætti hússins ásamt súpujurtum og nýbökuðum smábrauðum.  Kraftmikil grænmetissúpa er best upphituð og getur dugað í nokkra daga og virkar alltaf þegar kuldinn læðist að. Það er bara ekkert betra en að setjast með sínum við borðið þar sem stóri potturinn er fullur af rjúkandi súpunni með öllum gjöfum jarðar svamlandi um í eigin næringu og vítamínum og ilmandi smábrauð syngja borðsálminn.

Haustið er komið.

RS0105 

Áður en ég hefst handa við eldmennskuna og saxa grimmilega niður allt góða grænmetið ætla ég að gera annað sem er líka best á fyrsta degi hausts. Fara í heitt bað með bubblum og bregða á leik með litlu gulu baðöndina mína. Setja sítrónuilm í hárið og þurrka mér svo með mjúku handklæði og fara í bómullarkjól og innskó úr ull. Setja svo ilmjurtir í krús og halda áfram að lesa Kundera svo ég geti tekið þátt í umræðunum hjá Mörtu með leshringnum mínum um upplifanir af bókinni

Lífið er annarsstaðar.

 Já hvort það er.

Í mér og þér.

Líka hér.

18

Gleðilegt haust.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Haustið er góður tími

Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2007 kl. 13:37

2 Smámynd: LKS - hvunndagshetja

Ja, hér á litla Íslandi sýnist mér nú eiginlega að vetrarbyrjun sé hafin. Ég hjólaði í gær úr Skálholti í sumarbústað í Biskupstungunum í slyddu og smá hagléli á tímabili, Kári vár í liði með okkur og flýtti för okkar um minnst klukkutíma - og hvítt er orðið í fjöllin. En þetta er líklega bara fyrsti vetur á síðari árshelmingi, svo kemur aftur haust og aftur vetur svo smá sumar og aftur haust og aftur vetur.

LKS - hvunndagshetja, 16.9.2007 kl. 13:44

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Allt gerist á haustin. Samkvæmislífið hefst og ég fæ almennilega afsökun fyrir áhugamálinu mínu; innivist og svona. Mikið hljómar súpan vel. Góða skemmtun í bókaklúbbnum. Ég ætla að vera fluga á vegg þar.

Guðríður Haraldsdóttir, 16.9.2007 kl. 13:48

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Alltaf jafnljóðrænn og yndislegur textinn hjá þér og myndskreytingarnar konfekt (eða grænmeti ;-) Já það var frost í nótt, frosið í grosbrunninum í morgun, svo kettirnir þurftu að hinkra aðeins á meðan sólin bræddi frostfilmuna af. Þá gátu litlu loðnu verðir götunnar fengið sér sopa. 

Ragnhildur Jónsdóttir, 16.9.2007 kl. 13:49

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

LKS.. Ég er í Englandi og í dag fannst fyrsta kuldanepjan í blænum og boðaði komu haustsins. Ég er svoleiðis búin að bíða eftir þessum boðbera svo ég gæti gert grænmetissúpuna góðu með viðhöfn

Og Gurrí mín..þessi bók  Lífið er annarsstaðar sem þú gafst mér í afmælisgjöf er þvílíkt búin að gleðja mig..Og heldur bara áfram að gleðja mig meira og meira.  Takk takk og aftur takk! Það er líka annað sem kemur með haustinu og það er bókalestur og kakó. Hvernig getur fólk lifað án árstíðanna. Þær eru svo mikilvægar og hafa einhvern takt í sér sem passar við ferð sálarinnar.  Stundum myrkur og kuldi, stundum ljós og hiti og svo allt þar á milli.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.9.2007 kl. 13:55

6 identicon

Komdu sæl frænka  ég er dóttir henar Kristrúnar systir hans Magga afa þíns , ég rakst á bloggið þitt á síðunni hennar Þórdísar Tinnu, og mátti til með að kíkja á þig  

Súpan þín er mjög girnileg nammi namm ég á örugglega eftir að búa hana til,   myndirnar á síðunni þinni eru alveg rosalega fallegar

Hafðu það gott Katrín mín

kveðja

Ragnheiður frænka

Ragnheiður Ingadóttir (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 16:46

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Verði þér grænmetissúpan að góðu og gleðilegt haust.

Svava frá Strandbergi , 16.9.2007 kl. 16:51

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég var með þessa súpu í gær eftir þinni uppskrift hún var æði takk Katrín mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.9.2007 kl. 17:27

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hæ Ragnheiður...ég bið kærlega að heilsa ykkur öllum og vona að lífið sé ykkur gott og sérstaklega sendi ég kveðju til Inga frænda og gamla bekkjarbróður míns. En gaman að þú skyldir kíkja hér við!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.9.2007 kl. 17:42

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hljómar vel elsku Katrín mín, svo sannarlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.9.2007 kl. 18:22

11 Smámynd: www.zordis.com

Ég er komin á þriðju grænmetissúpuna sem við snörlum i á kvöldin.  Hún er aldrei eins þar sem efniviðurinn breytist eftir búi.

Yummy gott og gaman að upplifa haustin ..... ég fylgi íslenski tímatali og nýt haustsins þótt það komi síðar á almannaksárinu hér sunnan.

Allt er vænt sem vel er grænt!

www.zordis.com, 16.9.2007 kl. 18:41

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, haustið, laufin falla, grjónagrautur, slátur, yndislegur árstími.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.9.2007 kl. 21:13

13 identicon

Mikið rosalega langar mig í grænmetissúpu núna. Yrði ekki vinsælt á mínu heimili, en ég er viss um að með elju og trú þá geti ég bætt mataræðið hér í Akurgerðinu 3f. Þetta er allt á réttri leið, en góða grænmetissúpu þyrfti ég að læra að gera ... og geri eflaust fljótlega.

Knús og kveðjur til þín, frá Akureyri hinni smáköldu, en það er hlýnun væntanleg, þótt hlíðar Hlíðarfjalls og Vaðlaheiðinnar séu hvítar. Með grænmetissúpunni verður allt grænt ...


Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 22:52

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bon apitit.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband