Leita í fréttum mbl.is

Jæja strákar..eretta ekki að verða komið??

Það er einhver nágranni minn sem er sprengisjúkur. Ég veit ekki hver hann er en hann býr í næstu götu og hefur núna sprengt u.þ.b 42 sprengjur og í hverri eru svona 150 hvellkúlur, blossar, læti og ljós og ég er búin að fá nóg. Er með hausverk af hávaða og kannski smá eftirköst eftir algerlega svakalega skemmtilegan gærdag,gærkvöld og örlítið næturbrölt.Sleeping Segi kannski aðeins frá því ævintýri síðar!!!

Jésús minn..here he goes again. Getur maður verið þekktur fyrir að standa með vatnsfötur og hella yfir þessar sprengjur hjá manninum?? Svo kemur í mogganum á morgun..Húsmóðir í vesturbænum handtekin á náttfötum í næstu götu við sína með tug stolinna vatnsfata.. Pirraður nágranni hringdi á lögregluna eftir að hún hafði eyðilagt lager af áramótabombum með því að skvetta vatni yfir draslið...Grin

Hef ekki meiri þolinmæði..þarf aðeins að skreppa!!!!! 

 247


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

.....eða fara út með slönguna........?

Hrönn Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 22:26

2 Smámynd: www.zordis.com

Slönguhugmyndin er góð! 

Eretta ekki búið eftir kvöldið ... Þrettándaknúsið er handa þér!

www.zordis.com, 6.1.2008 kl. 22:31

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Látt´ann hafa´ða.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2008 kl. 22:36

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nágranninn er hættur að sprengja og ég get farið uppí að lesa í ró og næði. Ég gerði ekkert í alvörunni enda á náttfötunum og prúð með afbriðgðum..nema kannski að senda MJÖG svæfandi hugarorku þarna yfir í næstu götu og VONA að sprengjukallinn færi bara að sofa svo við hin gætum farið að sofa. Og voila..þetta gekk allt eftir eða kannski þurfti hann bara að fara niðrá BSÍ að kaupa sér malt og appelsín. Hvað veit ég??

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.1.2008 kl. 23:20

5 Smámynd: Ívar Pálsson

Gleðilegt ár! Við ætluðum að sprengja einhverja litla rest núna fyrir utan hús á þrettándanum, þá reyndust það vera heilu pokarnir af sprengiglaðningi fyrir nágrannana eins og þig! Ílukakan með 100 ílum kviknaði þó ekki, kveikurinn brann upp og nú er hún enn úti að kólna. Kannski tekur glóðin við sér á miðnætti! Afsakaðu, það eru nokkur ár síðan maður stóð í því að svæfa börnin, þannig að þetta vill gleymast í hita leiksins. Annars sér innflytjandi flugeldanna um aðal lætin rétt hjá okkur, öllum stundum.

Ívar Pálsson, 6.1.2008 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband