Leita í fréttum mbl.is

Hversu lengi getur gott batnað???

apan23070800066Svei mér þá ef þessi hrikalegi stormur um helgina hafi ekki feykt burtu einhverjum hindrunum í mannshafinu.

Fyrir utan það að hafa farið í brilliant bílapartý hjá Heklu og snitturmeðí...(mæli með bílnum sem getur bakkað sjálfur í stæðiW00t  og bílnum sem er með reiðhjóli á toppnum sem er örugglega hugsað fyrir konur eins og mig sem geta ekki skipt um dekk og geta bara hjólað heim ef það er eitthvað vesen...)

...og  eftir magnaða málverka og listasýningu hjá Söru Vilbergs á laugardeginum í Gallerí Fold Rauðarárstíg þar sem var stórskemmtilegt fólk og hittingar með alls konar flækjum eins og íslendingum einum er lagið..þar tóku líka lagið strákar sem heilluðu konu uppúr skóm og sokkum..  og fyrir utan kvennapartýið á laugardagskvöldið þar sem örlaganornir hlupu sveittar á milli að tengja örlagavefinn og prjóna saman ætlanir og áætlanir sem eiga eftir að sýna og sig og margsanna...já fyrir utan alla þessa skemmtun og gleði sem náði að rúmast á einni helgi þá lágu bara skemmtilegheitin og fyrirboðin um betri tíð og blóm í haga um allar lendur okkar. Ísland er svoleiðis nýskúrað og skínandi eftir öll lætin að það er hægt að spegla nýþvegna þjóðarsálina í því.

 

Það er bara eins og fjársjóðskistunni hafi skolað á land og nú sé bara okkar að munda lykilinn og opna hana. Og nota bene..hún er ekki troðfull af silfurpeningum heldur einhverju allt öðru sem mun koma okkur öllum svo til góða.

Svei mér þá ef hún er ekki bara troðfull af bjartsýni, batnandi fólki sem best er að lifa í sátt og samlyndi, hellings samkennd og ilmandi berjalyngi. 

Mother-and-Child-detail-from-The-Three-Ages-of-Woman,-c1905-Print-C10136725

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

veðrið og fólk, gaman. hérna er veðrið gott, óvenju heitt !

Bless í dag

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 16:11

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hef ég sagt þér nýlega hvað þú ert frábær?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.2.2008 kl. 20:28

3 Smámynd: www.zordis.com

Svona helgar eru bara skemmtilegar og mikið hefði ég viljað vera á sýningunni hjá Söru!

ég er með lítla spákonu í sápukúlu sem er með fiðrildi í maganum!  Ég hlakka svo til! 

www.zordis.com, 11.2.2008 kl. 22:36

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ.  Hvernig væri að ég kæmi við hjá þér næstu helgi og næði í kortin? viltu gefa mér gsm þannig að ég geti hringt þegar ég er í bænum? hvað kostar þetta samtals?

Ásdís Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 22:59

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mín er aldeilis skáldleg eftir helgina.  'A að gfa út? Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.2.2008 kl. 23:59

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, stundum veitir ekki af að blása hressilega og feykja nokkrum köngurlóavefjum í burtu.

Steingerður Steinarsdóttir, 12.2.2008 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 310957

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband