Leita í fréttum mbl.is

Eigum við ekki að fá okkur göngu og skilja pappakassana eftir heima?

ist2_3281954_moving_houseÞeir sem mótmæla og standa upp fyrir lýðræði og rétti þjóðar eru tíu sinnum verðmætari fyrir framtíð íslands en þeir sem heima sitja!! Trúi ekki öðru en að allir sem ekki eru með pappakassa yfir höfði sínu komi á morgun á Austurvöll og sýni samstöðu með sinni þjóð!!

Það verða nokkur hundruð skilti fyrir utan Borgarafundinn sem hefst klukkan 13.00  í Iðnó á morgun sem fólk getur tekið með sér á mótmælin á Austurvelli  klukkan 15.00. Nokkrir ungir menn tóku sig til og gerðu þessi skilti sem við getum öll fengið að nota. Flott framtak hjá þeim!! Á skiltunum stendur m.a Spillinguna burt og Borgum ekki!!!

Það verður  líka fróðlegt að bera saman talningu innlendra fjölmiðla og lögreglu og svo erlendra fjölmiðla sem fylgjast vel með hvað hér fer fram og eiga ekki orð yfir þeirri kúgun sem þeir eru að verða vitni að hérna. Við bara verðum að sýna veröldinni þarna úti að það renni enn í okkur blóðið og að við séum ekki algerlega máttlaus þjóð sem stendur ekki upp fyrir sjálfri sér.

Svo fáum okkur göngu í miðbæinn á morgun og látum ekkert stöðva för okkar á leið til alvöru lýðræðis. Hef heyrt að það verði einstaklega flottir ræðumenn á Austurvelli.

Þeir sem ætla að mæta á borgarafundinn ættu að koma tímanlega því ég get ekki ímyndað mér annað en að það verði meira en fullt út úr dyrum. Borgarafundurinn hefst klukkan 13.00 í Iðnó og það verða hátalarar úti svo fólk sem ekki kemst inn getur hlustað fyrir utan á umræðuna sem þar fer fram.

 

200125925-001

 Best að setja á sig baráttuskóna sína og halda áfram að þramma fyrir framtíð barnanna okkar...og okkar. Wink Við eigum eftir að labba alla leið á toppinn..ek100_3338ki gleyma því!!

100_3343


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Tek undir þetta!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.11.2008 kl. 18:15

2 Smámynd: Aprílrós

tek undir þetta

Aprílrós, 7.11.2008 kl. 18:50

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú hefðir nú alveg mátt skella inn myndinni af Mary Poppins skónum þínum á ströndinni. Þeir eru flottir til að vera í á leið á toppinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.11.2008 kl. 21:14

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Auðvitað verð ég líka að hafa Mary Poppins skóna með og alls ekki má gleyma rauðu hefðarkonu skónum sem eru fullir af steinum. Þetta geta verið svolítið þung spor sko!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.11.2008 kl. 21:27

5 Smámynd: Heidi Strand

Ræðumenn á Austurvelli á morgun:

Sigurbjörg Árnadóttir, fyrrverandi fréttamaður RÚV í Finnlandi.
Arndís Björnsdóttir, Kennari
Einar Már Guðmundsson, rithöfundur

Fundarstjóri: Hörður Torfason

Heidi Strand, 7.11.2008 kl. 22:52

6 Smámynd: www.zordis.com

Verð með í andanum og aetla að telja ykkur í spaenska sjónvarpinu! Mundu að vinka .....

www.zordis.com, 7.11.2008 kl. 23:39

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég mæti

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.11.2008 kl. 00:59

8 Smámynd: persóna

Ég mæti í gulum skóm!

persóna, 8.11.2008 kl. 06:45

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þessi fréttamannafundur í gær var greinilega settur upp til að lægja öldurnar því það er farið að fara um ráðamenn núna þegar þeir sjá að íslendingum er fúlasta alvara þegar þeir krefjast réttlætis og rannsóknar. Þess vegna verðum við að mæta öll í dag á Austurvöll til að halda áfram að þrýsta á úrbætur og breytingar.

Alls ekki gefa neitt eftir. Það er svo mikilvægt fyrir okkur að við komum SPILLINGARLIÐINU BURT í eitt skipti  fyrir öll!! Austurvöllur kl 15.00.

Og munið að vera í þykkum úlpum..þá sýnumst við vera enn fleiri...

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.11.2008 kl. 08:19

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Tilkynning sem ég rakst á á netinu og tók mér bessaleyfi til að setja hér inn.

KÆRU LANDSMENN!
 
 
ERLENDIR FJÖLMIÐLAR OG STJÓRNVÖLD BÍÐA EFTIR ÞVÍ AÐ
 
ÍSLENDINGAR RÍSI UPP OG TAKA ÁBYRGÐ Á ÞVÍ ÓHUGNANLEGA ÁSTANDI
 
SEM HEFUR SKAPAST - MÓTMÆLI AF KRAFTI OG ÞÁ ERU ÞEIR TILBÚNIR TIL
 
AÐ LEGGJA OKKUR LIÐ EN EKKI FYRR - ÞVÍ DOÐI OG ÁHUGALEYSI LANDSMANNA
 
ER ÞEIM ALGERLEGA ÓSKILJANLEGT FYRIRBÆRI !
 
 
NORÐMENN, SVÍAR OG FLEIRI HAFA LÝST ÞVÍ YFIR AÐ ÞEIR HAFI TAKAMARKAÐAN
 
ÁHUGA Á AÐ HJÁLPA HEILLI ÞJÓÐ SEM KÝS ÞAÐ AÐ HJÁLPA SÉR EKKI SJÁLF.
 
ÞVÍ VERÐA ALLIR ÞEIR SEM EKKI ERU SAMÞYKKIR ÞVÍ AÐ ÞESSI HÖRMUNGARSAGA
 
FÁI AÐ HALDA ÁFRAM - AÐ SÝNA SAMSTÖÐU OG MÓTMÆLA ÞVÍ ÁSTANDI SEM ER AÐ
 
JARÐA ÍSLENSKU ÞJÓÐINA - NÚNA !  
 
EN AÐ ÞEIRRA MATI GILDIR ÞÖGN SAMA OG SAMÞYKKI !
 
MÓTMÆLIN Á MORGUN FARA FRAM Á AUSTURVELLI KLUKKAN 15:00
 
ÞAR SEM ALLIR TAKA SAMAN HÖNDUM OG SLÁ SKJALDBORG UTAN UM ALÞINGISHÚS OKKAR
 
ÍSLENDINGA,  HLUSTA Á RÆÐUHÖLD OG LÁTA UMHEIMINN VITA AÐ NÚ SÉ OKKUR VIRKILEGA NÓG BOÐIÐ
 
OFT VAR ÞÖRF EN NÚ EN ÞAÐ DAUÐANS ALVARA AÐ BERJAST GEGN ÞESSU ÁSTANDI !
 
 
TIL AÐ LÁTA ALLAN HEIMINN SJÁ HVAÐ Í OKKUR BÝR OG HVERJIR SKULU SVARA TIL SAKA
 
FYRIR AÐ KOMA ÞJÓÐ OKKAR HÁLFA LEIÐ Í GRÖFINA!
 
EF ÞJÓÐIN GETUR FYLLT BÆINN Á MENNINGARNÓTT ÞÁ GETUR HÚN ÞAÐ VEL NÚNA!
 
ANNAÐ ER EKKI Í BOÐI!
 
 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.11.2008 kl. 10:05

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

vildi að ég gæti mætt en verð í vinnu. Baráttukveðjur

Hólmdís Hjartardóttir, 8.11.2008 kl. 13:38

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Tek undir allt sem þú segir.

Svava frá Strandbergi , 9.11.2008 kl. 04:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband