Leita í fréttum mbl.is

Maddama kerling fröken eða frú? Hver er ég??? Hjálp!!

garðyrkjukonaHefur einhver farið í Debenhams og fengið klæðaburðsráðgjöf? Svona sérfræðing sem velur liti og snið og stíl. Gerir mann gasalega lekkera dömu á no time og dregur fram allt það besta í fari manns?

Ég er alveg týnd og tröllum gefin með stílinn. Er að fara í gegnum fataskápinn minn og taka uppúr töskunum síðan ég var á íslandi síðast (sem var í nóvember minnir mig) Ekki skrítið að ég hefi ekki átt neitt til að fara í. En staðreyndin er sú að þesssi föt sem þarna hanga eru ekki ég. Veit ekki hvað breyttist en mig langar ekkert að eiga neitt af þessum flíkum en hef ekki græna glóru um hvað ég vil heldur í staðinn.

Það var verið að opna nýja búð í bænum þar sem fást svona kjólar og skór eins og gömlu kvikmyndastjörnurnar klæddust, fjaðraslár og sokkabönd. Mér finnst það soldið smart. En samt ópraktískt þegar maður er ekki kvikmyndastjarna og er aldrei boðið neitt flott út og er bara að gera allt sem venjulegt fólk gerir dagsdaglega. T.d þurfti ég að setja ruslið útfyrir í morgun. Hefði ekki passað að vera með fjaðraslá þá..ha?. Plús það að það hefur aldrei gerst að fólk sitji um að taka af mér myndir. Ég þarf alveg að snúa upp á hendurnar á mínum betri helmingi svo hann taki myndir af mér. Fattaði allt í einu að það var eins og ég væri ekki í þessari fjölskyldu því það voru engar myndir til af mér . Bara börnum karli og gæludýrum og svo fysta bílnum okkar.

Æ er þetta kannski bara svona miðaldurskrísa. Kannski hefur það líka eitthvað með það að gera að ungpæju sniðin eru ekki alveg að smellpassa mér núna. Ætli ég verði ekki bara að horfast í augu við að það sé komið að því.

 Að fá sér kvenfatnað. Í dröppuðu. Og Velúr heimagalla.Blush

Hjálp!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sko málið er að það sem er þægilegt er ekkert endilega neitt mjög smart. Og nú langar mig að verða eins og Marta smarta og vera bæði í þægilegum og fallegum fötum með stíl sem á engan sinn líka. Sem passar mér og mínum miðaldra búki og láta mér líða eins og million dollar baby Mér finnst þetta bara sjálfsögð kvenréttindi.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 11:27

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Skoðaðu blöð og ekki einblýna á efni og þh... skoðaðu snið. Svo þegar þú hefur fundið e-ð sem þér finnst smart arkarðu bara af stað með blaðið undir hendinni

Heiða B. Heiðars, 26.1.2007 kl. 11:58

3 Smámynd: www.zordis.com

Ég er kjólafíkill, veit hvað þú átt við þegar þú talar um þetta með kvikmyndastjörnuna og skjótast út með rusllið.  Ég ætla að ganga í mínum fínu kjólum og líður alltaf vel í þeim burt séð frá tísku og tískustraumum.  Sá einn geðveikan svona stjörnukjól og keypti hann og kom manninum þægilega á óvart ... Væri alveg til í ráðgjöf um föt og fatastíl, kanski ættir þú að hanna þína eigin línu Góð hugmynd, nú er föstudagurinn farinn að kitla mann og heil helgi framundan!

www.zordis.com, 26.1.2007 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 310946

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband