Leita í fréttum mbl.is

Er ég orðin fjólublá??? Örlagaspurningar konu á föstudegi.

Þegar ég skoða myndina af mér sýnist mér ég vera fjólublá á litinn. En bara á blogginu. Frummyndin er alveg eðlileg. Haldiði að það sé óhollt fyrir mann að vera hérna?

Lítur út eins og ég sé að kafna eða kannski er ég bara orðin svona svaðalega andleg? Er ekki fjólublái liturinn tákn fyrir eitthvað merkilegt. Ætli það séu mín örlög að verða kannski kaþólskur biskup?. Jésús Pétur og ég sem kann ekki stakt orð í latínu.

 Ég verð að segja að ég er mjög forvitin um þetta allt saman svona á föstudagssíðegi.

 

Góða helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ertu að reyna að telja okkur trú um að þú sért ekki svona fjólublá? Þegar þú ferð að endurnýja fataskápinn passaðu þá að kaupa liti sem passa við fjólublátt

Góða helgi Maddama

Heiða B. Heiðars, 26.1.2007 kl. 19:04

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Var að spá hvort maður ætti að lita á sér hárið í stíl. Man eftir þegar ég litaði á mér hárið blátt og fór í hermannagalla um jól og setti bláa fjöður í eyrað og gerði uppreisn gegn öllu stelpunum í hvítum jökkum, gallabuxum og skærlituðum bol. Bara nennti ekki að vera ein af þeim. Verslaði í Flónni gamaldags skinnkápu og mussu og upplitaðar buxur. Og var voða mikil týpa. Sagði öllum gildum stríð á hendur og vildi vera ég. Og vil enn vera ég. Spurning hvað maður gerir í stöðunni. Amman verður auðvitað að passa inn á myndirnar og vera frekar settleg. Vá hvað allar þessar tískumyndir geta ruglað mann í ríminu. Mega ekki konur vera bjúitífúl með magann á sínum stað og innfallin brjóst og vera samt sætar? Bara verst að það passa engin snið við þetta lúkk. Læt dóttur mína verðandi hönnuð fá þessar upplýsingar og hún mun slá í gegn fyrir okkur kellurnar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 21:23

3 identicon

In vino veritas in aqua sanitas  og ef þú ert Jesús Pétur þá segir þú á fyrsta degi Fiat lux !!!!!!!!!!!!!!!!

Kv Hulda sem fékk 5,3 í latínu (blog.central.is/810  þar sem bloggað erí friði fyrir fjölmiðlum)

Hulda (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 21:25

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það gat nú ekki annað verið en að það kæmu mér latínuunnendur til hjálpar!!!!

Hvernig segir maður...."Halló kæra fjölskylda og meigð þið hafa það sem best" á latínu?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 21:34

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það gat nú ekki annað verið en að það kæmu mér latínuunnendur til hjálpar!!!!

Hvernig segir maður...."Halló kæra fjölskylda og meigð þið hafa það sem best" á latínu?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 21:36

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Allt er þá tvennt er.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 21:36

7 identicon

ég get nú ekki sagt þér það enda fékk ég bara 5,3 og það eina sem ég hafði upp úr því var LATINA SINE CAUSA FEMINAE INSANSUS sem útleggst "latína orsakar óheilbrigði konu" og fann ég þetta upp á mitt einsdæmi og kennaranum mínum fannst þetta ekki einu sinni fyndið .......

blog.central.is/810 

Hulda (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 22:22

8 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Ave, familia cara, vale! Jamm, latínan er ekki alltaf mjög flókin! Hins vegar kem ég ekki alveg heim og saman málfræðinni og merkingunni í latnesku setningunni í athugasemd nr. 7 ...

Hlynur Þór Magnússon, 26.1.2007 kl. 22:40

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Latína smatína!

En hvað meinarðu "ömmur þurfa að vera ... eitthvað" ? Eina sem ömmur þurfa að vera er mjúk lending... og þá meina ég ekki í kílóum. Trúðu mér, þegar maður fær fyrsta ömmubarnið 36 ára OG er eilífðartáníngur þá lærir maður að henda út öllum gömlu hugmyndunum um ömmur mjöööög hratt.  Vertu bara "amma skvísa" ;)

Heiða B. Heiðars, 26.1.2007 kl. 23:05

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Latína smatína!

En hvað meinarðu "ömmur þurfa að vera ... eitthvað" ? Eina sem ömmur þurfa að vera er mjúk lending... og þá meina ég ekki í kílóum. Trúðu mér, þegar maður fær fyrsta ömmubarnið 36 ára OG er eilífðartáníngur þá lærir maður að henda út öllum gömlu hugmyndunum um ömmur mjöööög hratt.  Vertu bara "amma skvísa" ;)

Heiða B. Heiðars, 26.1.2007 kl. 23:06

11 Smámynd: Heiða B. Heiðars

ps...

Miðað við athyglina sem ég þar sífellt að baða mig í veitir mér ekkert af tveimur kommentum

Heiða B. Heiðars, 26.1.2007 kl. 23:08

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

iss bara 36. Aman

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 23:39

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

iss bara 36. Amman í okkar familíu var aðeins 31 þegar hún fékk titilinn.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 23:41

14 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Vá!Jæks! !!!  

En..... hvað átti hún mörg þegar hún var 42?? AHA... Næ örugglega af henni toppsætinu núna!!

Heiða B. Heiðars, 27.1.2007 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 310946

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband