Leita í fréttum mbl.is

Óskagyðjurnar mættar!

godd3

Það er hætt að rigna og tímabært að líta út og skoða hið nýja útsýni.

Gróðurinn ilmar af ferskleika og fuglarnir dásama hið hreina.

Ég líka.

Gyðjur af öllum toga mætast og ákveða saman nýja framtíð sem ber keim af óskum okkar.

Óskaðu þér vel og af vanda.

Óskin sú gæti ræst.

Hver er hún?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Wow, þetta með óskina er svo heilagt!  Að óska sér er athöfn sem er gerð með mikilli þókn og vilja!  Ég hef óskað mér af vanhug og mínar óskir rætast alltaf .......... Að óska sér er ein af þessum stundum þegar hugur þinn stöðvast og stillir í ró!

Góða Nótt kæra Katrín ..... Á morgun veit ég ósk mína eftir ígrundun nætur, húma og hunangsins er umlykur sálu mína! 

www.zordis.com, 14.5.2007 kl. 21:16

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Óskir eru heilagar og skemmtilegar á sama tíma. Út frá hvaða tilfinningu óksum við okkur? Begna djúprar þarfar og örvæntingar eða út frá elsku og yndislegri skynjun. Hverju eða hverjum þjónar óskin sú? Ég óska mér...man þegar ég fann lsoksin fjögurra laufa smárann eftir margra klukkutíma legu á hnjám í grasinu. OG fögnuðurinn í hjartanu að hafa fundið óskasmárann...en óskin lét á sér standa þegar hún var loks í hendi minni. Hvað vildi ég raunverulega mest? Og hvaðan var sú ósk sprottin? Hvítir klossar úr skæóbúð Einars Jóels var óskin mín...ég var 9 ára. Þremur dögum seinna gengum við pabbi í gegnum bæin og hann keypti fyrir mig hina hvítu klossa. Og þá trúði ég á smárann. Í dag held ég smáranum í hendi og hugsa....hvað er virði þessarar óskar og hvaðan er hún sprottin?

Hverju mun hún þjóna? Mér eða þér. Okkur?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 21:26

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

sniðugt, var einmitt að hugsa það sama og Jóna Ingibjörg, rigning í logni, fátt betra

Hrönn Sigurðardóttir, 14.5.2007 kl. 22:32

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ha....er ekki eitthvað skrítið að íslenska konur óski sér rigningar??? Vilja þær ekki frekar eithvað sem ekki er auðfengið? Eins og t.d lægri vaxta???

He he....

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 22:35

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Dulúðug mynd, uahhh, maður fær aðkenningu að óttablandinni hugföngun. Hvar í litrófi heimsins er hægt að staðsetja gyðjur? Hvað eru þær? Til hvers eru þær? Hverjum tilheyra þær? Ég fór mikið að huga um þetta um dainn þegar samstarfskona mín sagði við mig sisona: Þú ert nefnilega gyðja, Guðný. Skildi ekki, skil ekki og er ekki viss um að ég muni skilja. Heheheheh!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 14.5.2007 kl. 23:01

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Gyðjur og guðir eða goð.

Gyðjurnar erum við stelpur...þessi innri kraftur og viska. Gyðjur vita og skilja..kunna og geta. Vita hvað er hvað og kunna að ráða leyndardóma. Tók gyðjunámskeið í fjöllum NEW MEXICO með íslenskum gyðjuheilara...Reyni Katrínarsyni...Uppvakning hinnar innri konu. Bæði fyrir karla og konur. Því þannig næst jafnvægið....þegar við skynjum karlinn og konuna innra. Hvernig er hægt að þekkja guði og goð og kannast ekki við gyðjur?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 23:11

7 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðann og blessaðan dag Ég óska mér... Humm... Ætla að hugsa málið á meðan ég fer út að slá

Guðrún Þorleifs, 15.5.2007 kl. 08:02

8 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Æðislega falleg mynd eins og alltaf hér á blogginu þínu og textinn ekki síðri. Í augnablikinu óska ég mér mest hvíldar.

Steingerður Steinarsdóttir, 15.5.2007 kl. 10:16

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Rigningin er góð  ég vona að   óskin   mín rætist   ég    þakka fyrir þetta.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.5.2007 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 104
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 104
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband