Leita í fréttum mbl.is

Indíánatónlist búddamunkur, fiðluleikari og ný hárgreiðsla.

Það hefur svo margt á daga..nei á gærdag minn drifið... að það er efni í margar færslur en ég læt eina duga og stikla bara á stóru.

Eftir að hafa lesið góð ráð og frábærar sálgreiningar á sjálfri mér hér fyrir neðanJoyful finnst mér rétt að upplýsa að hárið er bæði sítt og stutt. Létt liðað og marglitt. Sumir litirnir betri en aðrir. Og alveg í takt við marglitan persónuleika sem lifir glaður og dapur til skiptis.

Gærdeginum eyddi ég á rölti í marga klukkutíma. Við Alice Þórhildur sem er að verða fullra fimm mánaða röltum í ókunnugu hverfi í næstum heilan dag meðan foreldrarnir þurftu að sinna aðkallandi erindi.

Göngugötur og torg..sumargarðar og spennandi stígar voru leiðir okkar.

Við hlustuðum á karl í skítugum stuttermabol leika unaðstóna beint frá himnum á fiðluna sína. Sátum  á bekk hjá blómasölustúlkunni og létum okkur dreyma og streyma með blómailmi og tónaflóði sem var sérdeilis fín blanda. Alice japlaði a snuddunni sinni og ég sá að hún var oft alveg í takt við fiðluleikarann.

red

Svo héldum við áfram göngunni umvafðar rauðbleikum lit því hjartað í okkur var orðið fullt af sumarkærleika  og amman lét sig  dreyma um stórfelldan verslunarleiðangur þar sem svörtum hælastígvélum yrði fleygt í skiptum fyrir sandala með loftgötum fyrir soðnar tær og svörtum bol og pilsi skipt út fyrir skræpóttan sumarkjól.

Hittum ungan Buddamunk sem sveif að mér því hann sagðist sjá það að ég væri góður kandidat til að kynna mér ferðir sálarinnar og gaf mér fallega bók um Yoga og Hare Krishna. Ungur strákur sem er kominn frá Írlandi. Sagðist hafa rekist á bók fyrir tilviljun sem breytti allri lífssýninni þegar hann las svo hann yfirgaf Guinessdrykkju og fótboltalíf og pöbbarölt fyrir æðra líf og dýpri tilgang og mun svo halda til Indlands næsta haust í ferkara læri. Flott hjá þér sagði ég og kvaddi hann með handabandi og orðunum

"We are all in this together"!

f589d241668e41a5d463829b071ea486

Síðan lá leið okkar Alicar um stræti sem iðaði af mannlífi og seiðandi tónlist dró okkur að eins og blóm dregur hunangsflugur. Þarna stóð alvöru indíáni með fjaðravængi og höfuðskraut..indíánatjöld og trumbur. Lék á panflautu og sönglaði framandi söngva og barði trumbu..við Alice vorum ekki lengi að hverfa inn í þennan tónlistarheim og vorum farnar að dansa í kringum elkd og söngla með í tunglskini einhvern tímann endur fyrir löngu. Alice meira að segja hjalaði og blés búbblur um leið og hún sveiflaði litlu höndunum sínum eins og hún væri aðaltrumbuleikarinn í hljómsveitinni.  Ömmunni fannst við hæfi að kaupa handa henni geisladiskinn þegar við loksins komum til baka úr þessari ferð..svo ömmustelpan geti hvenær sem er horfið inn í þennan heim heima hjá sér.

aloha

Þegar við vorum orðnar þreyttar fundum við bókabúð á mörgum hæðum..tókum lyftuna up á kaffihúsið..þar fengum við okkur kappúsínó, hreina bleyju og kíktum í barnadeildina og settum á minnið nokkrar undursamlegar bækur sem við ætlum að kaupa ásamt músík sem við teljum að við munum hafa mjög gaman af að kynnast saman. Alice hló og hjalaði og sat eins og hefðardama á kaffihúsinu í fangi ömmu sinnar með marglita hárið og soðnu tærnar. Báðar alsælar að fá heilan dag saman bara tvær. Einhverjir bræður áttu ömmu sem þeir kölluðu amma Dreki. Mér finnst að ég eigi að vera Amma engill.

Því ég hreinlega verð troðfull af englorku af því að umgangast svona nýjar sálir sem eru ekkert nema yndið og kærleikurinn.

777

Akkúrat núna get ég hannað jólakortin...englaorkan er best.

Heyrumst þegar ég er búin með dagsverkið.

Knús.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Amma engill er yndislegt orðtak handa ömmu mús eins og þer! 

www.zordis.com, 19.5.2007 kl. 15:53

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Engla orkan er er yndisleg, eins og þú góð manneskja.

Kristín Katla Árnadóttir, 19.5.2007 kl. 16:37

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Amma engill er vel við hæfi..ekki af því að ég sé alger engill..heldur af því að ömmubörnin mín gera mig að algerum engli þegar ég er nálægt þeim.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.5.2007 kl. 16:41

4 Smámynd: Hugarfluga

Falleg frásögn, Katrín ... og hrífandi ... eins og þú ... engill.

Hugarfluga, 19.5.2007 kl. 17:53

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndisleg færsla sem lyfti mér upp á æðra plan.  Smútsj á þig og Alice Þórhildi

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.5.2007 kl. 18:50

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

yndisleg færsla og skemmtileg. Viss um að það er gott að eiga ömmu eins og þig

Margrét St Hafsteinsdóttir, 19.5.2007 kl. 21:51

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta var frábært, mjög myndræn færsla eins og svo oft áður, var með ykkur á ferðalaginu og fannst voðalega gaman, það er svo gott að fá svona stutta túra og skoða þessar fínu bækur með ykkur.

ljós til þín og takk fyrir samfylgdina

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.5.2007 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 310934

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband