Leita í fréttum mbl.is

Hvað er það í lífi þínu sem er of lítið/eða sjálfsagt til að þú takir eftir hvað það er æðislegt?

36Þakklæti fyrir allt það góða í líf þínu  færist í athugasemdir og verður þannig ódauðlegt um leið og það verður þér og öðrum sýnilegt.!!! Ath..ekki færri en 5 atriði verða vera skráð svo þú getir ekki annað en glaðs yfir gæfu þinni og gjörvileikaHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mín 5 atriði sem ég gleðst yfir aftur og aftur eru

Að geta farið í heitt bað þegar mér dettur í hug.....það að hafa aðgengi að vatni er svo frábært.

Að hafa frelsi til að fara og gera það sem mér dettur í hug þegar mér dettur það í hug....gæti ekki lifað við frelsisskerðingu eins og milljónir manna þurfa að gera.

Lapptoppinn minn...ég bara elska hann og allt sem við getum gert saman. Tengst öllum heiminum.

Rúmið mitt...mjúka sængin mín og að kúra með allri familíunni þegar það er rok og vont veður.  Vissan um að það er allt í lagi með fjölskylduna mína og vonin um að svo verði áfram

Ólívur, kerti, tónlist, reykelsi, bækur, pistasíur,heilsa, ilmvatn og spriklandi vatn ásamt sjóðheitum kappúsínó á kaffihúsinu mínu og spjall með vinum.

Þessu hef ég aðgengi að á hverjum einasta degi og svo miklu miklu meira til. Ykkur t.d. Er maður studnum ekki að gleyma að þakka fyrir allt það góða sem er í lífinu...mig vantar ekki neitt!!!! Og ef ég held að mig vanti eitthvað þá er það ímyndun..hehe.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 16:07

2 Smámynd: Hugarfluga

Þessi atriði sem ég nefni eru reyndar ekkert of lítil/sjálfsögð til að ég taki eftir þeim... en ég skil pælinguna þína.  Gæti reyndar haft listann mun lengri.  Ég er þakklát fyrir:

1.  Manninn minn og stjúpsynina tvo. Veit ekki hvað ég hef gert í þessu eða öðru lífi til að fá að elska þá og vera elskuð af þeim á móti.

2.  Bestu vinkonu mína, sem hefur frá því við vorum 7 ára (nærri 30 ár) verið mér traustur og sannur vinur, sama hvað á hefur bjátað.

3.  Fallega heimilið mitt.

4.  Að þurfa að grennast ... það eru forréttindi, sem segja mér að ég hafi það afskaplega gott.

5.  Að eiga mann nýtur þess að klóra á mér bakið. Aha ... ég var bænheyrð þar!

Hugarfluga, 22.8.2007 kl. 16:27

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hmmmmm þetta krefst umhugsunar.....

1. Hafa aðgang að hreinu og tæru lofti er eitthvað sem ég tek sem sjálfsögðum hlut en er það svo sannarlega ekki!

2. Vatn! Drykkjarhæft vatn úr krananum! Ómetanlegt!!!

3. Frelsi til að komast ferða minna, óáreitt

4. Geta tjáð mig og vera sama þótt ekki séu allir sammála mér

5. Geta elskað án þess að vænta einhvers á móti

Hrönn Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 16:35

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já það er svo mart.

1. Að vera frísk

2. Eigja góða fjölskyldu

3 .Að vera jákvæð

4.Góða vatnið okkar

5.þykja væntum fólk og dýr

6. Allir eiga fyrir mat og á sig

7. þykja vænt um sig

Kristín Katla Árnadóttir, 22.8.2007 kl. 17:51

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Oh fyrirgefðu ég sagði 7 staðin fyrir5

Kristín Katla Árnadóttir, 22.8.2007 kl. 17:58

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Kristín Katla mín..því fleiri því betria..

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 18:03

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

eftir því sem ég hugsa þetta meira því fleira dettur mér í hug....

6. hafa skilið við alkóhólistann sem ég var gift allt of lengi

7. eiga heimili þar sem er gott að vera

8. þekkja þig

9. að foreldrar mínir eru bæði á lífi

10. hafa heilsu í lagi

11. geta farið út svo snemma á morgnana að fuglarnir eru enn sofandi og hlustað á kyrrðina

.........

Hrönn Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 18:10

8 Smámynd: Þröstur Unnar

1. Að geta andað hjálparlaust.

2. Að vera með bílpróf og eiga jeppa.

3. Að vera ekki dópisti eða alki.

4. Að fá að eldast án þess að aðrir séu á móti því.

5. Að hafa elskað.

Þröstur Unnar, 22.8.2007 kl. 20:33

9 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Já, ég held e.t.v. að það sem sé erfiðast að elska sé maður sjálfur?

Börnin eru sjálfsögð. Makinn og nánustu ættingjar ekki endilega sjálfsögð en ofarlega á baugi. En þú sjálf?

Ef þú getur talið upp tíu atriði (þó þau séu bara fimm) sem þú elskar hjá sjálfri þér = þá ertu í höfn:

Ásgeir Rúnar Helgason, 22.8.2007 kl. 21:23

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já ég get það auðveldlega. Hefði eflaust strandað við þann lista fyrir nokkrum árum en núna geri ég hann með gleði. Það sem ég elska við sjálfa mig er bjartsýni, hugmyndaauðgi, skipulagshæfileikar, hjálpsemi, húmor, víðsýni, sköpunarkrafturinn, næmni, að hafa auga fyrir að gera fallegt í kringum mig, kjörkuð að prófa nýjar leiðir,stend með sjálfri mér, geri það sem ég elska og elska það sem ég geri. Sko þetta var ekki erfitt og ég þurfti að stoppa því ég var komin yfir 10 atriði áður en ég vissi af. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 22:20

11 Smámynd: Hugarfluga

Hey, og ég er þakklát fyrir Beef Jerky og tannþráð í framhaldinu ....

Hugarfluga, 22.8.2007 kl. 22:37

12 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

1 Afkvæmi mín

2 Fjölskylda mín

3 Bókmenntir

4 Músíkk

5 Ferðalög

Þessu gleðst ég yfir daglega og þakka fyrir ótt og títt, dag og nótt. Svo er ýmislegt annað sem gleður hug og hjarta og maður er í sjálfu sér alltaf þakklátur fyrir.

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.8.2007 kl. 23:04

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Æ, ég las of flausturslega fyrirsögnina þína, þú ert auðvitað að tala um sjálfsagða hluti, sem maður tekur ekki eftir. Hmmmm....

Little things in life, ja, það er nú það....!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.8.2007 kl. 23:07

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

1.Að maðurinn minn elskar mig eins og ég er.

2. Í 51 ár hefur alltaf komið nýr dagur.

3. Ég er aldrei blönk þó svo ég eigi ekki pening.

4. Ég er aldrei svöng vegna skorts á mat.

5. Ég get enn bjargað mér sjálf þótt heilsan sé oft slæm.

Ekkert litlir hlutir en ég er þakklát.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 23:09

15 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

að vera hér

að vera heilbrigð

vakna við fuglasöng

minni áhyggjur

að geta skapað

AlheimsLjós til þín 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.8.2007 kl. 06:16

16 Smámynd: Marta B Helgadóttir

1. skóna mína 

2. kerti

3. gott kaffi og margar gerðir af því 

4. súkkulaði  mmmm

5. rauðvín

hmmm ég er greinilega nautnaseggur þessa stundina

Marta B Helgadóttir, 23.8.2007 kl. 09:45

17 Smámynd: Viðar Zophoníasson

Kaffi og sígó að morgni, hef heyrt að það sé líf eftir það, er tregur að kaupa að svo sé.

 

Passinn minn: frelsi, að geta verið á öðrum stað á morgun en í dag, það er gott að vera Íslendingur.

 

Skynfærin: skynja og vinna úr.

 

Fólkið mitt: tek það alltof oft sem sjálfsögum hlut.

 

Lífið: undrast það undur að vera til, daglega.

 

Kveðja Viðar.

Viðar Zophoníasson, 23.8.2007 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 310958

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband