Leita í fréttum mbl.is

Tökum höndum saman....stöndum vörð um hvert annað þegar yfirvöld gera það ekki.

Mér finnst bara fyrir neðan allar hellur að það sé ekki brugðist við þessu. Og Heiða á allar þakkir skildar fyrir að berjast fyrir þessu...látum ekki gleymskuna ráða því hvort bætt verði um betur.

ATHUGA! Óska eftir smá samstöðu hérna frá ykkur!

Eins og nokkur ykkar hafa kannski tekið eftir, hef ég verið að kynna mér svefnlyfið Flunitrazepam  undanfarið. Flunitrazepam er sama lyf og Rohypnol, engu breytt nema nafninu, og hefur verið þekkt sem nauðgunarlyf í mörg ár. Ég hef leitað eftir svörum og almennum upplýsingum um lyfið undanfarið og niðurstöðurnar eru sláandi.

Þetta tiltekna svefnlyf hefur enga sérstöðu sem er til bóta fyrir þá sjúklinga sem þurfa á svefnlyfi að halda. Á markaðnum eru tugir svefnlyfja sem gagnast sjúklingum alveg jafn vel  og sem ekki hafa þá "kosti" sem nauðgarar sækjast í, þ.e. minnisleysi og almennt rænuleysi til að veita nauðgara mótspyrnu.

Augljósasti kostur lyfsins er að sjálfsögðu sá að nauðgarar geta verið nokkuð vissir um að  fórnarlambinu er nánast ómögulegt að kæra eða framfylgja kæru vegna þessa minnisleysis. Lyfið er stundum notað við dáleyðslu vegna þess að það er nánast hægt að fá fólk til að gera hvað sem er undir áhrifum þess.

Hérna koma linkar á fyrri skrif mín um lyfið og svör Landlæknis. En óvísindaleg könnun mín á því hversu algengt það er að lyfinu sé laumað í drykki kvenna á skemmtistöðum borgarinnar kom mér á óvart.. þrátt fyrir að ég hafi verið nokkuð viss um að þetta sé miklu algengara en fólki grunar svona almennt.
Rohypnol 1

Rohypnol 2

Svör Landlæknisembættisins

Sem konu og móðir tveggja dætra er mér mikið í mun að þessum óþverra sé hent út af lyfjaskrá hér á landi. Á árinu 2006 var rúmlega 11.000 skömmtum ávísað af lyfinu. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Lyfjastofnunnar er best að koma svona málum á framfæri til Lyfjastofnunar, sem síðan leggur þau fyrir Lyfjanefnd.

Læt fylgja póstinn sem ég sendi í dag á netfangið lyfjastofnun@lyfjastofnun.is

Ég vona að sem flestir láti heyra frá sér, karlmenn og konur. Því fleiri sem senda þeim beiðni/kröfu um að lyfið sé tekið af skrá því betra!

 

Lyfjastofnun Ríkisins

Svefnlyfið Flunitrazepam hefur enga jákvæða virkni fyrir þá sjúklinga sem neyta þess fram yfir þá tugi annara svefnlyfja sem eru á lyfjaskrá.

Virka efnið í lyfinu hefur þó þau neikvæðu áhrif að af því skapast algjört minnisleysi og getuleysi til að greina umhverfi sitt. Þessi atriði hafa valdið því að lyfið hefur þann vafasama heiður að vera þekkt sem "nauðgunarlyf" (Date-Rape). Lengi hefur tíðkast, hér á landi sem annars staðar, að lauma því í drykki kvenfólks til að ná fram áðurnefndu minnis- og getuleysi og ef allt fer samkvæmt áætlun fylgir nauðgun í kjölfarið. Það er nánast ógerlegt fyrir fórnarlamb þessa að kæra til lögreglu sökum minnisleysis.

Árið 2006 var Flunitazepam ávísað í ríflega 11.000 skömmtum. Þar sem lyfið hefur enga sérstöðu til bóta fyrir þá sjúklinga sem nota það fer ég þess á leit að Flunitrazepam verði tekið af lyfjaskrá hér á landi hið snarasta.

Öryggi stúlkna/kvenna hlýtur að vega þyngra en svo að nauðsyn teljist til að hafa þetta hættulega lyf í umferð

Virðingafyllst

Þetta er bara algerlega ólíðandi!!!!!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

TAKK

Heiða B. Heiðars, 23.8.2007 kl. 21:44

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ekkert mál Heiða mín að leggja baráttu þinni og okkar lið...þú átt bara allar þakkir skildar fyrir þrautsegjuna og þolgæðið. Þurfum fleiri SKESSUR eins og þig sem láta sig málin varða og gera eitthvað í málunum....Þetta er bara algerlega ólíðandi og verður að stoppa.

Takk sjálf!!!!!!!!!!

Við hin verðum líka að láta i okkur heyra HÁTT!!!!!!!!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.8.2007 kl. 21:49

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það eiga bara ALLIR að segja eitthvað alls staðar sem þessi áskorun keur upp á blogginu......það þýðir ekkert að þegja yfir svona ömurlegheitum. Við verðum bara að segja eitthvað og hafa HÁTT!!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.8.2007 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 310959

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband