Leita í fréttum mbl.is

Of syfjuð til að blogga....

RW174Farin að sofa eftir góða útiveru í dag. Ekkert betra stundum en að skríða snemma í ból með góða bók. Rosalega er Milan Kundera magnaður rithöfundur...alger unaður að lesa bókina hans. Lífið er annars staðar. Eins og að vera nakin í konfektkassa sem bara dýpkar og dýpkar...endalausar hæðir af konfekti.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndi ertu. Hugsa mér gott til glóðarinnar að lesa mörg blogg frá þér, - á morgun. Það er svo eitthvað óheyrilega mikið að gera hjá mér núna, ég bara hreinlega hleyp á milli bloggvinanna svona til að vera viss um að allir séu heilir og vel haldnir.  Good night, dearest.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.9.2007 kl. 21:28

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég var einmitt að lesa Kundera í dag. Er komin á bls. 200 og eitthvað, virkilega áhugaverð lesning.  Sofðu vel.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.9.2007 kl. 22:09

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

jamm ég er að rembast við að lesa Kundera. Verður samt aðeins útundan hjá mér........

Vona að hann taki það ekki inn á sig

Góða nótt

Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2007 kl. 22:40

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Fer loks á pósthúsið á morgun, fekk tilkynningu um sendingu fyrir helgina

Dásamlega samlíking, margar hæðir af konfekti Góða nótt.

Marta B Helgadóttir, 9.9.2007 kl. 22:58

5 Smámynd: www.zordis.com

Ég var nú einna helst til sybbin til að vakna!  Það tóks og framundan 1. vinnudagur e.frí ... væri til í að vafra á milli hæða í konfektkassanum góða og finna súkkulaði ilminn.

Eigðu frábæran dag!

www.zordis.com, 10.9.2007 kl. 07:03

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Kundera kemur á óvart. Aldrei lesið neitt eftir hann fyrr. Góð samlíking með konfektkassann, en hræddur um að ég myndi kannski dvelja helst til lengi við ílöngu molana með álpappírnum........og verða lengi til botns.

Halldór Egill Guðnason, 10.9.2007 kl. 09:53

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér finnst erfitt að fá bókina ég er alltaf að bíða eftir henni.

Kristín Katla Árnadóttir, 10.9.2007 kl. 09:58

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Guðmundur þó??? Amma mín myndi nú eitthvað segja við svona hressileika.

Þetta er líka fyrsta bókin sem ég les eftir Kundera en myndina Óbærilegur léttleiki tilverunnar sá ég og fannst bara trufl. Langar að sjá hana aftur núna. Svo er ég líka svo spennt að kynnast lesvinum mínum nánar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.9.2007 kl. 15:32

9 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég tek undir þetta með konfektkassann. Búinn með 300 mola (síður) og á 55 eftir.   Samlíkingin við margra hæða konfektkassa er góð, en þannig skrifar víst Kundera.   Bókin skilur eftir mikil hughrif sem hægt er að njóta lengi. Situr í höfðinu eins og bragð af góðu konfekti.

Ágúst H Bjarnason, 10.9.2007 kl. 16:46

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Aldrei hefur mér nú dottið í hug að fara berrössuð í konfektkassa ! 

Anna Einarsdóttir, 10.9.2007 kl. 17:40

11 Smámynd: Hugarfluga

Er ekki alveg á sama róli í þessum konfektkassa. Kemst ekki niður fyrir efsta lagið. Kann ekki að meta þetta konfekt, þó allir segi að það sé gott. En smekkur manna er misjafn, n'est pas? Knús.

Hugarfluga, 10.9.2007 kl. 17:42

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Anna súkkulaðibað á berum brjóstum og marsipan um mjaðmir með kaffikremi?? Hvíttaðan flórsykur í augabrúninni....jummí mummí!

Hugarfluga auðvitað hafa ekki allir sama smekk..það er það æðislega við lífið og leshringi.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.9.2007 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband