Leita í fréttum mbl.is

Lífið er ekki bara fiskur og franskar

200515018-001

Í mér býr leyndarmál sem ég er alveg að farast úr spenningi yfir. Bloggið sem ég bloggaði í gær um hvítu dúfuna var greinilega svona óafvitandi forspá því í dag tala ég nýtt tungumál og líka fólkið í kringum mig.

Hvað gerist næstu daga sker svo úr um það hvort ég geti sagt ykkur frá þessu spennandi dæmi. Verð að líma fyrir munninn á mér og fara í lopavettlinga svo ég missi þetta ekki út úr mér. Eina sem ég get sagt núna er...Life is not only Fich and Chips.Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nei það er náttlega saltfiskur..það vita allir.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2007 kl. 19:07

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

He he..já en í englandi er allt fish and chips og ég er einmitt í englandi eins og þú veist. Allavega ennþá!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.9.2007 kl. 19:12

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

U la la .  hvað er í gangi. ???

Ásdís Sigurðardóttir, 12.9.2007 kl. 19:18

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já hvað er nú í gangi.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.9.2007 kl. 20:54

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 My lips are seald...segi ekki orð. Leyndó hætta að vera leyndó um leið og maður kjaftar. Mig klæjar í tunguna að kjafta......en þið megið alveg skrifa öll ykkar leyndó hérna ef þið viljið. Fólk hreinlega elskar leyndó og allt sem má ekki segja frá.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.9.2007 kl. 21:15

6 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Ert þú hluti af mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar?

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 12.9.2007 kl. 21:48

7 identicon

Hahahaha, skemmtilegt og spennandi.  En þú ert þó allavega ennþá í Englandi!!!

Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 21:59

8 Smámynd: Hugarfluga

Ég bíð þá bara ... pollróleg ... sei sei já.  Bíði bíði bíði ....

Ætlarðu núna að segja okkur? Ha? 

Hugarfluga, 12.9.2007 kl. 22:58

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú ert ekkert smá-dularfull, kona! Ég get uppá að þú sért að opna kaffihús, hvar verða myndlistarsýningar, auk kaffis og kanelsnúða, á boðstólum og veggjum.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.9.2007 kl. 23:36

10 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Er að springa úr spenningu - hvað áttu við?

Valgerður Halldórsdóttir, 12.9.2007 kl. 23:38

11 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðan daginn leyndardómsfulla frú  Maður bíður auðvitað ferlega rólegur eftir að leyndarmáli komi fram. Ekkert mál, sei, sei, nei

Guðrún Þorleifs, 13.9.2007 kl. 06:26

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert í Færeyjum.  Nananabúbú

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 09:15

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nú verður maður forvitinn.  En það er bara eitthvað í loftinu svei mér þá.  Ég á fullt í fangi með að þekkja sjálfa mig þessa dagana, ég bregst svo ólíkt sjálfri mér við svo mörgu.  Það er ef til vill nýtt tungumál

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2007 kl. 09:51

14 Smámynd: Ibba Sig.

Jiii, hvað þetta hlýtur að vera erfitt fyrir Katrín. Og lesendur þínir vitlausir ef þeir eru ekki búnir að fatta Þú praktikalli segir þetta upphátt í blogginu þínu og kommentakerfinu. 

Já, ég veit The Secret!  

Ibba Sig., 13.9.2007 kl. 13:13

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 he he Ibba..er það svona augljóst??? En finnst ykkur það ekki annars góð hugmynd hjá mér að verða Fich and Chips sali í aðalgötunni hérna í lItla bænum. Eitthvað svo ekta ég! Love the smell!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 14:58

16 Smámynd: www.zordis.com

Þú ert uppfull að yndislegum hugmyndum .....  Það verður bara notalegt að fá almennilegan smell og njóta matarins í návist verts sem er glæsilegri en gengur og gerist.

Það er alltaf gaman að eiga og deila leyndarmáli

www.zordis.com, 13.9.2007 kl. 15:16

17 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Eina sem ég get sagt er að hlutir þokast í rétta átt...og það er bjart yfir Esjunni. Svona í minningunni allavega þó núna sé þar hávaðarok.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 15:42

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Katrín mín inn um lúguna kom pósturinn frá þér í dag.  Mikið er þetta fallegt og steinninn yndislegur, eins og egg, táknrænt fyrir nýja byrjun.  Ég ætla að fara með þetta niður í nornabúðina og sýna þeim.  Og líka í blómabúðina.  Þetta er meiriháttar hjá þér.  Knús til þín.  Og svo kom þetta auðvitað á besta tíma fyrir mig, þegar ég þurfti smáknús.  Er það ekki bara þannig með allt, að við fáum það sem við þurfum, þegar við þurfum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2007 kl. 16:24

19 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Æ gott að heyra það Cesil mín..ég var einmitt að lesa á blogginu þínu um brottför barnanna. Takk fyrir hjálpina..ég er að finna betri hönnun sem steinninn fer ofan í utan á kortinu svo hann þurfi ekki að vera ofan í sama plastvasanum. Já ég valdi þenna stein sérstaklega handa þér..þeir eru allir mismunandi í lögun og lit. En þessi var algerlega þú!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 16:36

20 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Forvitnin drepur köttin

Þú vilt ekki fara drepa nokkra ketti

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 13.9.2007 kl. 16:40

21 Smámynd: Marta B Helgadóttir

...spennandi !  ........hvenær fáum við að vita ?

Marta B Helgadóttir, 13.9.2007 kl. 17:00

22 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þegar ég fæ að vita fáið þið að vita.  

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 17:02

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég valdi þenna stein sérstaklega handa þér..þeir eru allir mismunandi í lögun og lit. En þessi var algerlega þú!!

Já ég fann einmitt þegar ég tók hann í höndina að ég fékk svörun frá honum.  Þetta er rosalega flott.  Takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2007 kl. 17:34

24 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Nú er ég að drepast úr spenningi. Ég krosslegg fingur og vona að þetta gangi allt upp hjá þér elsku kerlingin. Það er reyndar minn hagur líka því ef ég fæ ekkert að vita spring ég.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.9.2007 kl. 19:27

25 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Stundum hefur maður plön og svo gerist eitthvað og allt í einu er allt það gamla farið og bara nýtt bíður og öll plön breytast. En eru samt algerlega rétt. Ég er á þeim stað núna. Allt sem ég hugsaði er uppí loft og svo er bara að sjá hvernig það lendir. Og ef ég hef eitthvað innklink um hvert förinni er heitið þarf ég að kaupa mér nýja úlpu.

Kuldaúlpu!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 20:46

26 Smámynd: Ívar Pálsson

Jæja, Katrín, gefur okkur ábendingu! Kuldaúlpa: Ísland, Noregur, Grænland, Rússland, Kanada, Finnland, Alaska eða bara upp í fjöllin eins og Bear Mountain resort þar sem ég var á skíðum yfir Los Angeles.

Fleiri ábendingar! Plís! 

Ívar Pálsson, 13.9.2007 kl. 21:58

27 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ívar minn þú sagðir það sjálfur að þesi mánuður yrði erfiður og hann er það.....losa út fortíðina og sjá hvað er hvað. Já slík sortering hefur verið í gangi..og nú er tekin ný stefna. Nýjar ábendingar eru þessar.....

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 22:04

28 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Kannski ætlar þú að gera tilkall til Norðurpólsins

Eða það virðirst mjög "heitt" í dag

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 13.9.2007 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband