Leita í fréttum mbl.is

Vitlaust talið og vitlaust gefið, rigning, kaffiilmur og kærleikskrepputal

Þegar maðurinn minn var búinn að lesa bloggið mitt í gær um ferð mína í  10 11 verslunina sem er allt of oft með vörur í hillum sínum sem eru ekki rétt verðmerktar... sagði hann hægt og rólega með djúpri röddu. "Katrín..ég fer í Bónus og geri helgarinnkaupin aleinn..það er best að þú farir bara og mótmælir á Austurvelli á meðan". Og ég gerði það eins og alla laugardaga hingað til og það þó ég væri enn með hálfgerða flensudruslu. Það var magnað að sjá hversu margt fók var komið til að sýna samstöðu og líka magnað að heyra í fréttum fjölmiðla að ég og allir þeir sem fara opinberlega gegn ruglinu og bullinu í ráðamönnunum séum bara talin vera einn fjórði af heilli manneskju. Eins og við mótmælendur höfum bara einn útlim, fimm tennur og tvöþúsund hár á hálfu höfði. A.m.k kosti tekst þeim alltaf að telja vitlaust og gera miklu minna úr okkur en efni standa til.  Hafiði tekið eftir hvað það er allt vitlaust talið og verðmerkt þessa dagana?? Og hreinlega vitlaust gefið í þessu samfélagi??

En ég er góð á sunnudagsmorgni. Er að hita mér kaffi, lesa bloggið og kætast yfir góðum orðum hér og þar. Þetta er t.d ein setning sem ég fann í athugasemdum í Blogginu hennar Láru Hönnu sem birti einmitt svo flottar myndir af mótmælunum í gær. Þar segir Baldur nokkur..." þeir sem mættu til að mótmæla eru tíu sinnum meira virði fyrir framtíð Íslands en þeir sem heima sátu" Og mér líður bara eins og million dollar woman today..finnst eins og ég geri gagn og skipti máli. Ég vil líka vekja athygli ykkar á því að Lára Hanna verður í Silfrinu hjá Agli á eftir. Hlakka til að heyra í henni þar.

651088~Herbal-Extract-Used-for-Oriental-Massage-Posters

Maður einn á besta aldri sem spilar oft á gítar og syngur lög eftir Hörð Torfason spurði mig í gær hvort ég ætlaði ekki bara á fullt í pólitíkina.  Ég sagðist ekki hafa neinn hug á því þar sem mér hugnast ekki flokkakerfið en ég væri til í að leggja þeim breytingum lið sem mér finnst vera nauðsynlegar í þessu landi og taka þátt í allri þeirri hugmyndavinnu sem nú á sér stað um allt land. Það er alls staðar fólk að hittast og skoða og skilgreina hvernig samfélag við viljum byggja upp úr rústum þess gamla. Hver gildin eru sem við elskum að hafa og viljum  sjá blómstra á öllum sviðum samfélagsins. Svo vildi hann eitthvað rökræða hvort mótmælin væru að virka og svona...en vitiði það að það er mér ekkert kappsmál að sannfæra einhvern annan um að  hann eigi að mótmæla. Það er bara eitthvað sem hver verður að finna út fyrir sig. Hvenær er maður búinn að fá nóg?? Og hvenær er manni verulega misboðið.  Ég veit það fyrir mig og þú verður að vita fyrir þig.  Svo annað hvort fylgir maður því eftir með framkvæmdum eða ekki. Svo einfalt er það nú. 526228494_ce3ca9f144

 Ég er líka viss um  að þau tár sem spretta fram í þrengingunum sem nú ganga yfir þjóðina munu breytast í svalandi daggardropa á framtíðardögunum okkar. Breytingar eru sjaldnast átakalausar..sérstaklega ekki umfangsmiklar breytingar eins og við erum núna að ganga í gegn um. Þær kosta blóð, svita og tár en munu koma okkur á betri stað þegar upp er staðið. Því trúi ég algerlega.

Jæja kaffiilmur fyllir nú heimilið mitt og ég heyri í rigningunni úti. Það er loksins ró og friður í hjarta mínu. Ég er þess fullviss að við getum allt bara ef við stöndum saman og hjálpumst að í gegnum þessa tíma og gleymum ekki hvað það er sem skiptir mestu máli.  Kærleikur og kraftur....eða kraftmikill kærleikur. Og það að kunna telja og gefa öðrum með sér.

Eigið góðan sunnudag öll sömulHeart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.11.2008 kl. 11:00

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Fallega sagt

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 2.11.2008 kl. 11:23

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

til þín

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.11.2008 kl. 11:57

4 Smámynd: www.zordis.com

 Sunnudagsknús milljon evru kona!!! 

www.zordis.com, 2.11.2008 kl. 12:50

5 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

 Knús til þín

Sigríður Þórarinsdóttir, 2.11.2008 kl. 13:31

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 14:07

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 14:44

8 Smámynd: Aprílrós

;)

Aprílrós, 2.11.2008 kl. 18:59

9 Smámynd: Vilborg

KNÚS

Vilborg, 3.11.2008 kl. 00:54

10 Smámynd: www.zordis.com

Ég var að sjá frétt hér á Iberíuskaga um mótmælin og ég taldi endalaust af fólki.

Baráttukveðjur!

www.zordis.com, 3.11.2008 kl. 06:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband