Leita í fréttum mbl.is

Ég myndi sko taka mér stöðu með ykkur ef ég væri ekki hrædd um að fá sekt á bílinn minn...

....sagði kona ein í gær þegar við sem stóðum hönd í hönd kringum alþingishúsið..kölluðum til hennar að koma og hjálpa okkur að standa vörð um lýðræðið. Svo hljóp hún eins og fætur toguðu út á bílastæði. Ég næstum vonaði að hún hefði fengið eina feita á framrúðuna en svo hugsaði ég með mér að ég væri enginn stöðumælavörður.... þó ég sé hins vegar alltaf að taka mér stöðu hingað og þangað um bæinn!

Við vorum alveg að lengja á okkur handleggina um nokkra metra meðan við stóðum þarna í upphafinu og vantaði enn nokkra alvöru íslendinga með svo við næðum hringinn í kringum alþingishúsið okkar.

untitled

Önnur kona gekk framhjá..við kölluðum til hennar að koma og aðstoða okkur. Hún veifaði og hrópaði á móti að hún þyrfti að vera annarstaðar....en hún væri með okkur í anda. Mig langaði að æpa á eftir henni og spyrja hana hvort hún héldi að við værum með miðilsfund þarna í miðbænum!! Og það er engum hvítbókum um það að fletta að ef allir þeir sem eru með í mótmælum í anda..væru taldir með værum við fyrir löngu orðin hundraðþúsund og einn á Austurvellinum.

Annars hefði ég ekkert verið hissa á að andi Jóns Sigurðssonar hafi verið þarna á sveimi og reynt að lemja Björn Bjarnason og aðra ráðherra í hausinn..svona rétt til að vekja fólkið og minna þau á um hvað raunverulegt lýðræði snýst!!!

Var bara í framhaldinu að velta fyrir mér hvað sé mikilvægara en að mæta í bæinn á laugardaginn.

Hvort þið gætuð bent mér á  mikilvægari gjörning en þann að taka sér stöðu gegn núverandi ástandi??

Eina sem kemur í veg fyrir að ég mæti er að ég er dauðþreytt að draga á eftir mér handleggina eftir strekkingar gærdagsins..en samt hæstánægð með að við náðum hringinn.

Annað hefði verið svo táknrænt ömurlegt.

p.s Við kreppukall erum að spá í að mæta með potta og sleifar og hafa hátt á laugardaginn

Ég er náttla húsmóðir og það bara klæðir mig vel að vera með potta og pönnur í eftirdragi..en fyrst og fremst er ég mótmælandi og mun taka mér stöðu gegn þessum ósóma sem hér viðgengst þar til hann er horfinn.  Moka honum ofan í mold og myrkur og stappa svo yfir með skilti sem á stendur..SPILLINGARLIÐIÐ BURT!!!

33

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já burt með spillingarliðið

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.11.2008 kl. 14:46

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég get sagt þér það Katrín mín, að það eru forréttindi að geta mótmælt á Austurvelli. Það er á við góða hreinsun á sálinni að finna samstöðuna, og vera með öllu þessu fólki, sem er að hugsa það sama og maður sjálfur, heyra ræður eins og út úr manns eigin sálartetri, og finna alvöruna sem liggur yfir öllu.  Ég verð með ykkur í anda, en ég myndi mæta ef ég væri á svæðinu.  Og ég held að ég myndi ekki láta stöðumælasekt stoppa mig, eða einhvern fund.  Ég segi bara megi sem flestir mæta og gefið rúm fyrir okkur hin sem stöndum með ykkur í huganum.  Við erum þarna, þá líkaminn sé víðs fjarri.  Því á þessum dögum skiptir ekkert meira máli en einmitt að sýna samstöðu og losna við spillingaröflin.  Spillingarliðið burt !!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2008 kl. 14:50

3 identicon

Ég hef ekki fylgst nógu vel með því ég frétti ekki af þessu fyrr en eftir á. Hefði svo sannarlega mætt ef ég hefði vitað að þetta stæði til, enda mæti ég gjarnan á mótmæli í líkama sem og anda.

Mér fannst þetta verulega flott aðgerð og óska öllum sem tóku þátt til hamingju. Spyr þó hversvegna í ósköpunum löggunni var hleypt inn í hringinn. Hlutverk lögreglu á staðnum er ljóst og leynt að tryggja vald þeirra sem sem hafa komið okkur í ógöngur. Lögreglan ÆTTI þó að vera til þess að vernda borgarana en ekki að hindra þá í að tjá sig og ég sé því  ekki að hún hafi neinn siðferðilegan rétt til að skipta sér af því hverjum er hleypt inn í alþingishúsið OKKAR.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 14:57

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nú eru sannkallaðir neyðartímar og NÚ Á RÚV að sinna hlutverki sínu sem fjölmiðill allra landsmanna og senda beint frá Útifundinum á Austurvelli svo öll þjóðin geti tekið þátt þó hún sé ekki í höfuðborginni..og þar með fengið þessa sömu tilfinningu um samstöðu og við hin sem erum á staðnum.

Sendum öll áskorun á Rúv....þetta er þeirra hlutverk á neyðartímum. Það er ekkert sem er mikilvægara að sjónvarpa beint eða útvarpa á laugardaginn.og ég fæ froðukast ef einhver talar um fótbolta núna. Sammála??? 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.11.2008 kl. 15:00

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég verð nú að vera með ykkur í andanum, er of langt í burtu.

frábært að það er fólk sem er að mótmæla, ég skil ekki að ekki allt ísland sé ekki að því !!!!!

KærleiksLjós frá Steinu í Lejre 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.11.2008 kl. 16:17

6 Smámynd: Hinrik Þór Svavarsson

sammála bein útsending frá Austurvelli.. skyldan kallar á alla að mæta..

það er ekki eftir neinu að bíða.

það á að hittast á austurvelli í kvöld kl 2000 og takast í hendur og standa saman án þess að krefjast neins sérstaks bara standa saman ..

held að sá hópur heiti STÖNDUM SAMAN eða eitthvað þvíumlíkt..

nú þarf fólk að standa saman...

Hinrik Þór Svavarsson, 13.11.2008 kl. 17:49

7 Smámynd: www.zordis.com

Frábaert framtak og zad er vissulega zarft ad standa saman ... Hins vegar eru mjög margir sem fljóta bara med og taka enga afstödu og eru sennilega trilljón ástaedur fyrir zví.

Andi minn sameinast med ykkur í baráttunni!

www.zordis.com, 13.11.2008 kl. 18:15

8 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Auðvitað á RÚV að sjónvarpa og útvarpa beint frá mótmælafundunum á Austurvelli! Af hverju hefur engum dottið það í hug. Það er fólk út um allt land sem stendur með ykkur og langar til að heyra og sjá það sem fram fer.

Við hérna á Akureyri ætlum að ganga til lýðræðis n.k. laugardag á sama tíma og útifundurinn stendur fyrir sunnan. Tilgangurinn er m.a. sá að sýna samstöðu með þeim sem standa vaktina þar fyrir okkur úti á landsbyggðinni. Auðvitað verð ég ein þeirra sem mæti í þessa göngu! Baráttukveðjur

Rakel Sigurgeirsdóttir, 13.11.2008 kl. 20:07

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hér átti að vera þessi fína mynd, en hún bara vildi ekki peistast.

Verð með ykkur í anda á laugardag.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.11.2008 kl. 23:07

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Úje

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.11.2008 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband