Leita í fréttum mbl.is

Vætusemi og lesvinahringur

23

Það hefur núna rignt undanfarnar tvær vikur eða svo. Fengum reyndar tvær vikur af sól í byrjun mánaðar þegar íslensku gestirnir komu en þeir tóku góða veðrið með sér aftur heim. Daginn sem þau fóru byrjaði að rigna aftur. En hva það skiptir ekki máli.

Ætla að vera með í leshringnum hjá Mörtu bloggvinkonu minni. Mikið hlakka ég til Þá skiptir engu þó það rigni. Hugsið ykkur að leggjast í góðan bókalestur og skiptast svo á skoðunum við aðra lesvini. Bara jólahrollur í mér get ég sagt ykkur. Ég geri líka alltof lítið af því að lesa skáldsögur þar sem ég ligg mun meira í fræðibókunum.

Jamm.

Og leirhausinn er nú ataður brúnum skóáburði en ég er ekki viss um að það hafi verið rétta lausnin....þarf að hugsa það mál aðeins betur. 

Undecided


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Leiðinlegt að það skuli rigna hjá ykkur.  Ég er orðin spennt sambandi við lesvinahringinn Gaman.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.8.2007 kl. 17:29

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Æ veður er bara veður....nenni ekki að ergja mig á því enda margt svo skemmtilegt í pípunum. Leshringurinn eitt af því sem kætir mig. Var einmitt að Panta mér bókina The Witch of Portabello eftir Paulo Coelho. Hefur einhver lesið hana???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.8.2007 kl. 17:34

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég hlakka líka til að byrja í leshringnum. Vona að þú getir lagað leirhausinn.

Svava frá Strandbergi , 20.8.2007 kl. 17:35

4 identicon

Sæl Katrín!

Takk fyrir kveðjuna. Ég veit að þú trúir ekki á tilviljanir... ég meina að tilviljanir séu tilviljanir Svo nú ætla ég að segja þér frá einni slíkri

Ég var inni á síðunni þinni sl. laugardag. Uppgötvaði hana fyrir hreina tilviljun Var að hugsa um að senda þér kveðju og hrósa þér fyrir síðuna þína, óska þér til hamingju með ömmubarnið o.s.frv. o.s.frv. en þetta vafðist eitthvað fyrir mér Það er svo langt síðan við sátum saman í Barmahlíðinni og ræddum saman eins og... tja mæður vinkvenna, vinkonur, sálufélagar eða bara allt þetta og meira til 

Hvernig átti ég að byrja þessa kveðju: „Hæ, þetta er mamma Telmu og Tinnu...“ eða átti ég bara að treysta því að þú myndir eftir mér og segja bara: „Hæ. Flott síða hjá þér.“ Ég lét mér þess vegna nægja að brosa til þín í huganum...

 Alla vega: kærar þakkir fyrir kveðjuna og gaman að vita að þú hafir fengið hugskeytið frá mér 

Rakel Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 20:27

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Rakel ég hugsa oft til þín.....en frábær EKKI tilviljun að eg skyldi svo rakast á síðu  Tinnu þinnar rétt áðan og senda þér kveðju í gegnum hana..ha??? Mér finnst að við ættum svo endilega að fá okkur kaffi næst þegar ég er á landinu og spjalla. Bara alveg hreint endilega!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.8.2007 kl. 20:33

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Í hvaða landi ertu annars?? kær kveðja til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.8.2007 kl. 21:05

7 identicon

Það er sama hérna Ég veit að ég gleymi þér ekki þó tíminn hafi liðið. Við eigum örugglega eftir að hittast og tala saman eins og við höfum hist síðast í gær Ég veit hins vegar ekki hvenær það verður og get heldur alls ekki lofað að ég verði búin að læra að drekka kaffi þá

Tíminn leiðir það líka í ljós hvort við hittumst á Íslandi eða Bretlandi. Núna veit ég a.m.k. hvernig ég hef samband við þig Póstfangið mitt er rakel@vma.is. Hittumst í framtíðinni

Rakel Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 21:39

8 Smámynd: www.zordis.com

Kvöldkveðjur ... alltaf gaman að taka upp þráðinn af gömlum og góðum vinum.

Spennandi þessi bloggvinahringur sem þið lestrarhestar takið þátt í!

www.zordis.com, 20.8.2007 kl. 22:46

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frá fimmtudag, opnun kl 20.00 á dönkum tíma 19,00 á islenskum .

verið velkomin, sendi út fréttabréf fljútlega

AlheimsLjós til  þín kæra katrín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.8.2007 kl. 05:14

10 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðan daginn og vonandi finnur þú fljótt lausn á hausmálunum

Góða skemmtun í leshringnum

Guðrún Þorleifs, 21.8.2007 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband