Leita í fréttum mbl.is

Verð að gangast við frægð og upphefð minni...

Undanfarið þegar ég hef haft samband heim heyri ég bara sögur af umfjöllunum um mig í útvarpi eða að pistlar mínir séru birtir hér og þar.....og enginn segir mér neitt. Að það hafi verið viðtal um söguna um Reyni Inga á útvarpi Sögu..að pistill birtist í MBL um að ég sé að flytja heim. Amma greyið hringdi og spurði mig um hvað þetta ætti eiginlega allt að vera og ég kom af fjöllum ofan.

Þegar ég svo hringi heim að segja fréttir eru allir búnir að lesa eða heyra um þær. Og engum kemur neitt á óvart!!!! Það er frekar fúlt að láta ræna sig ánægjunni að færa fréttirnar sjálfur.Pouty

Ég meina common....það væri nú bara gustuk að leyfa manni að fylgjast með eigin frægð heima fyrir...svo ég verði ekki viðutan og mjög hissa þegar þið standið öll með íslenska fánann í flugstöðinni og fagnið heimkomu minni þegar ég kem heim.. Af því að ég er orðin svo obbosslega fræg án minnar vitundar. Maður þarf nú að næra EGÓIÐ...ekkert gaman að njóta athygli sjálfs síns...er það nokkuð???Sideways 

8344~Amazingly-Enough-Posters

Þett er nú frekar dónalegt comment.....og ekki alveg það sem ég meina.

Finnst myndin bara flott og textinn skemmtilega á skjön við ímynd konunnar.

Endilega upplýsið mig um hvað er um að vera þarna hinu megin við hafið svo ég sé ekki alltaf eins og kona komin af fjöllumJoyful

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Ég er saklaus! Í alvarans alvöru!! Vissi ekki neitt! En hvenær kemurðu annars heim til mín??

Hugarfluga, 6.10.2007 kl. 19:52

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég verð komin fyrir næstu mánaðamót ef allt gengur eftir.

Erum búin að fá yndislegt húsnæði, vinnan bíður og flugið verur bókað á næstunni. Fjölskyldan flýgur svo heim og verður settluð inn um mánaðamótin. Svo byrjar hið íslenska líf. Göngutúrar í miðbæínn og kaffihúsaheimsóknir. Einnig hittingar við bloggvni. Verið bara velkomin.

Það sem ég var bara að furða mig á eru allar þessar fréttir af viðkomu minni heima án minnar vitundar. Enginn segir neitt við mig sem fylgist ekki með neinu. Skemmtilegt og skrítið!!!!

Það verður spennandi að byrja nýtt líf eina ferðina enn. En það er lífið. Að koma og fara eftir tilfinningunni. Vera þar sem hlutirnir eru að gerast og þegar þeir kalla. Núna bara kallar íslandið á mig. Vona að Ítalía vinkona mín geri vart við sig þegar ísland er búið aftur. Við eigum að hreyfa okkur eftir því sem hjartað talar. Gera það sem við viljum þegar við viljum. Svoleiðis lifi ég.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 20:32

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Erum bara að pakka og ganga frá öllum hlutum núna....vúúú..ekkert smá erfitt að sortera hvað á leið heim og hvað ekki. Selja þetta, gefa hitt. og taka rest með sér sem manni finnst skipta máli. Nýja íbúðin bíður frá og með 1. nóvember og mér til mikillar gleði er hún bara mjög nálægt þinni. Ykkur er hér með boðið í matarboð Jóna Ingibjörg. Getið komið labbandi. Vesturbærinn blífar!!! 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 20:44

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mikið hlakka ég til að fá ykkur heim, elskurnar! Ég var greinilega aðeins of fljót á mér að selja Hringbrautina ... annars er stutt úr Vesturbænum í himnaríki. 

Guðríður Haraldsdóttir, 6.10.2007 kl. 21:02

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Ég sá bloggið þitt í mogganum, ég er svo einföld að ég hélt að mbl léti bloggara vita eða bæði um leyfi að birta bloggið á síðum blaðanna

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 6.10.2007 kl. 21:04

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nei enginn segir neitt...maður bara fréttir eitt og annað. En það var fyndið um daginn þegar amma hringdi og spurði um hvað allt þetta tal ætti að þýða í útvarpinu um mig...og ég hafði ekki græna glóru um hvað væri að gerast!!!!Sgan um Reyni Inga hafði greinilega haft áhrif hér og þar en það sem var fyndið var að enginn hafði samband við mig. Þar em ég var einu sinni útvarpskona..þá hefði mér aldrei dottið í hug að setja saman viðtal án þess að hafa samband við þann sem setti fram söguna. Eru allir bara að bulla eitthvað og nenna ekki að skoða hvað er hvað??

Svei mér þá...ég held að þið þurfið mig aftur í loftið!!! Ef einhver vill gera þætti um mál...er það minnsta sem fólk gerir kröfu til er að viðkomandi viti um hvað hann eða hún er að tala...ekki satt??

Þar sem ég hef eytt a.mþk 20 árum í rannsóknir og menntun um óheðfbundin mál þá hlýt ég að hafa eitthvað meira um þau að segja en fólk sem bara tiplar um yfirborðið og heldur að þar með sé málefnið coverað??? Af því það veit ekki betur.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 21:15

7 Smámynd: www.zordis.com

 betra að vera með egóinu .... og að vera í göngufæri við Jónu Ingibjörgu er himneskt!  Besti staðurinn í bænum, sá allrabesti.

Frægðin gerir ekki boð heldur boðar þig heim!

www.zordis.com, 6.10.2007 kl. 21:18

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ef einhver hefur vreið efasemdarmanneskja þá er að ég !!!! Ég dreg allt í efa. Fer mínar leiðir og rannsaka og les og fer á fyrirlestra  af því að ég vil ekki trúa sjálfri mér og mínm upplifunum.Afneiðati þeim svo lengi....því ég fann ekki vísindalegar sannanir fyrir að vera það sem ég fann og var stöðugt að rekast a hindranir fyrir því sem ég stóð fyrir skipti máli. En ég er hætt því núna því mínar reynslur segja mér annað.

Og ég hef ákveðið að fara með þeim

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 21:39

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er nú farin að hlakka til að sjá hvernig þú lítur út, alltaf teiknuð kona hjá þér , en kannski get ég flett þér upp á myndasíðu MBL.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.10.2007 kl. 00:39

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Er ekki áskrifandi að Mogganum síðan sonur fór en les hann stundum í vinnunni. Heyri því miður sjaldan í útvarpi nema bara kvöldfréttunum og þegar maður er að keyra eitthvað á milli staða.

Hef alveg misst af umfjöllun um þig en ég hefði látið þig vita.

Segi eins og Hulda, hélt lengi vel að Mogginn fengi leyfi hjá bloggurum áður en þeir birta skrif þeirra í blaðinu. Þegar ég var í sumarfríi og var að blogga öðru hvoru um ferðina um landið þá var það Hugarfluga sem lét mig vita inn á bloggsíðuna að skrifin væru í blaðinu, ég varð mjööög hissa.

Fyrst ekki merkilegri pistlar en það var, rötuðu inn á síðurnar í blaðinu þá máttu alltaf búast við að þín flottu skrif rati þangað.

Njóttu bara meðvindsins, megi hann verða þér til góðs

Marta B Helgadóttir, 7.10.2007 kl. 01:34

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ásdís mín hélstu að ég væri alvöru kona??

Ég er bara teiknimyndafígúra og er sprottin út úr ævintýri og er bara til á blogginu

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.10.2007 kl. 10:34

12 Smámynd: Guðrún Þorleifs

He he. . . auðvitað ertu alvöru "fígúra"   Ég held ég hjálpi bara henni Ásdísi minni við að finna þig  

Gangi þér vel að pakki pakka... 

Guðrún Þorleifs, 7.10.2007 kl. 12:47

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ekki vera að brúka munn Katrín (sbr. mynd að ofan). Hehe.  Gemmér eiginhandaáritun

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.10.2007 kl. 13:16

14 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég les bara blöðin á netinu og hlusta aldrei á útvarp! Hafði ekki hugmynd um að ég þekkti svona fræga konu!!! En mikið dj.... hlakka ég til að hitta þig loksins kona!!!!! 

Heiða B. Heiðars, 7.10.2007 kl. 13:42

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég verð að viður kenna að ég hefekki litið í blöð en verð að kíkja á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 7.10.2007 kl. 18:06

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vá ertu orðin svona fræg  Les ekki moggann og missti af þessu alveg, en gaman samt.  Þarf að fara að fletta þessum mogga, svo ég geti fylgst með frægð vina minna

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.10.2007 kl. 18:30

17 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já segðu Cesil mín....og það allt saman án minnar vitundar..Hef samt aldrei talað í BBC útvarpið eins og þú og get örugglega farið með strætó án þess að þurfa að gefa eiginhandaráritanir hægri vinstri. Stöðugt verið að vitna í bloggara um allt..umkvörtunarefni húsmóður var mest um upplýsingastíflur á flæðilínunni milli íslands og englands

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.10.2007 kl. 18:57

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þú ert alla vega heimsfræg í Skagasápunni ...

Guðríður Haraldsdóttir, 7.10.2007 kl. 19:03

19 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Frægð þí fór fram hjá mér, enda er ég algerlega laus við fjölmiðlafíkn.  Horfi hvorki á sjónvarp né les blöð. Læt mér nægja að fylgjast með hér í bloggheimum, sem ég hélt að vissu allt.  Ég hef heyrt af mínum pistlum á síðum Mbl en aldrei séð.  Bara gaman af því.  Frægð mín af þessum sökum er þó greinilega algerlega huglæg.  Engir papparassar, sem bíða mín þegar ég staulast í vinnu á morgnana.

Ég þarf meira að segja að sýna nafnskírteini, þegar ég leigi mér vídeó. Skandall segi ég.  Veit fólk ekki hver ég var!?

Jón Steinar Ragnarsson, 7.10.2007 kl. 19:37

20 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Alger skandall Prakkari minn..segi það með þér!!!

 Heyrðu nú líður að því að við getum kannski fengið okkur kaffi á parís bráðum..ha?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.10.2007 kl. 19:42

21 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég bíð spenntur.  Kannski við nafna mín og þú gætum fengið okkur sopa. Hún var að nefna bloggvinahitting.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.10.2007 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 310958

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband