Leita í fréttum mbl.is

Kæri Bloggvinur sko....

9109~I-Didn-t-Say-it-Was-Your-Fault-Posters

Já einhverja afsökun verð ég að hafa fyrir að vera ekki enn búin að hringja og fá tilboð í gáminn frá Samskipum, safna saman öllum glósunum mínum og lestrarefni ásamt rannsóknum svo ég geti sett saman nokkur þúsund orða ritgerð og komið upp til Oxford á næstu dögum, ekki enn búin að redda mér pappakössum til að setja dótið í sem á að fara second hand búðirnar hér, fara í gegnum háaloftið eða finna út hvernig maður flytur stór olíumálverk á milli landa. Og ekki bara það. Fara í skóla krakkanna og biðja um námsskýrslurnar þeirra og hringja og athuga með skóla heima fyrir þau og hvort það sé tónlistarnám í skólanum og pláss í KR fyrir knáan fótboltastrák.

Og ég sit hér og les blogg.  Það er bara ykkur að kenna!!!

Viljið þið gjöra svo vel og hætta vera svona skemmtileg og næs.

Gengur bara ekki á örlagatímum, þið skiljið!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Skal gert. Mun þegja þunnu hljóði það sem eftir er dagsins.

Steingerður Steinarsdóttir, 8.10.2007 kl. 10:24

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er nú búin að vera voðalega stillt og góð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.10.2007 kl. 11:01

3 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

En það er bara svo margt að tala um.

Ingi Geir Hreinsson, 8.10.2007 kl. 12:09

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Tala, tala og tala..það er ekkert hægt að tala endalaust..Það verður að láta verkin tala. Og svo látið þið bara eins og þið hafið ekki séð mig hérna núna..ég er nefninlega að skrifa mörgþúsundorða ritgerð á útlensku og það kjaftar hver tuska á öllum mínum verkum í dag. But I blame you!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 12:34

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

.....no comment *fliss*...þekki þetta ástand....á að vera að skrifa lokaritgerð en hérna inni eru allir svo skemmtilegir að maður getur ekki annað er lesið og lesið og lesið..........blogg !

Sunna Dóra Möller, 8.10.2007 kl. 12:43

6 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég er mjög ánægð með hvernig þú tekur enga ábyrgð á þessu - og setur þetta algjörlega yfir á blog-vini þína.  Enda betra að dreyfa ábyrgðinni á fleiri aðila - og fleiri herðar.  Hvenær kemurðu svo til okkar?

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 8.10.2007 kl. 14:26

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já það þýðir ekkert annað en að finna sökudólga og benda illilega í allar áttir sem geta hjálpað manni að svipta sig ábyrgðinni á eigin verkum ..eða verkleysi....hehe.

Það þýðir ekkert að spyrja mig..spurðu heldur hina ábyrgu bloggvini mína hvenær og hvernig þeir hafa hugsað sér að koma mér heim..ekki mitt mál. Hef öðrum hlutum að sinna í bili. Getur hvíslað að þeim að það henti mér fínt að koma rétt undir mánaðamótin. Syndi synd.....

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 14:40

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Tek á mig smá sök, en þetta er nú vinnan mín núna, á að sitja/liggja og blogga.   hehehehe þú ert bara duglegust, vertu viss þetta reddast allt.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.10.2007 kl. 14:58

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já ég er reyndar búin að gera heilmikið í dag..tala við íslensku skólana sem mér líst svooooo vel á, biðja um tilboð frá Samskip og redda kössum..meira að segja farin að grúska í glósum og punkta hjá mér fræðin...PLÚS það að fjarstýra hinum helmingnum sem er nú um þessar myndir að lenda á íslandi. Mikið obbosslega held ég að ég væri góður framkvæmdastjóri. Gengur svo vel að segja öllum hvernig á að gera hlutina.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 15:03

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Blessuð vertu ekki að kenna mér um þetta framtaksleysi! Ég hef þagað í marga daga! Með alvarlega bloggstíflu!

Heiða B. Heiðars, 8.10.2007 kl. 15:30

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Núna bara horfi ég á dótið mitt og hugsa...hvað er þess virði að taka með og hvað má bara verða eftir??? Fullt af mínu eiga sér minningar sem ég vil eiga en veit samt ekki hvort það á erindi í framtíðina. Að sortera líf sitt og mikilvægi þess er ekki alveg auðvelt. Og hvað á ég að skrifa í ritgerðina mína sem hefur vægið sem þarf að komast til skila?

 Og hvernig kveður maður vini sína vitandi ekki hvenær við sjáumst næst?

Þetta er allsherjar risatórt pússluspil og ég sit hérna sveitt við að koma því saman svo vel verði. Nýtt líf og ný framtíð.

Alveg rosalega spennandi og á sama tíma rosalega "veit ekki hvernig þetta allt lendir" tími. Fara heim með tvö börn og tvö verða eftir. Stóru stelpurnar að klára sitt og koma kannski seinna heim...skrítið að eiga svo nánustu fjölskylduna í tveimur löndum.

Set bara traust mitt á að allt er eins og það á að vera og held áfram að sortera og pakka. Hlakka samt svo mikið til að hitta vini sem ég hef bara átt bloggsamband við.

Það verður eitthvað sniðugt!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 19:44

12 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Hver getur siglt þó gefi ei byr?Hver getur róið án ára?Hver getur kvatt sinn besta vin?kvatt hann án skilnaðartára. Ég get siglt þó gefi ei byr.Ég get róið án ára.En ei kvatt minn besta vinkvatt hann án skilnaðartára.

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 8.10.2007 kl. 19:47

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gangi þér vel dúllan mín. Ekki vildi ég vera í þínum sporum. Aldrei neitt mál að henda annarra manna dóti, en mínu eigins? Þetta er allt svo verðmætt...........

Hrönn Sigurðardóttir, 8.10.2007 kl. 20:14

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mér finnst dásamlegt þetta viðhorf hjá þér, ekkert af þessu er vandamál, kvart eða kvein heldur eru þetta bara verkefni til að leysa  

Marta B Helgadóttir, 8.10.2007 kl. 20:28

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Alls ekki misskilja mig hér.....ég valdi mér leið og ég er að ganga hana alveg alla leið. Þessi 7 ár hér eru búin að vera meira en ég hefði getað ímyndað mér..í byrjun alls ekki auðveld og fullt af fyrirstöðum..svo varð það auðvelt og ég byrjaði að læra á allt. Núna er bara næsta skref að taka og það er auðvitað líka fullt af fyrirstöðum. En það sem ég hef lrt er að í gegnum þær fer maður bara með hausinn uppúr vatninu og andar í takt við lífið. Lætur sig fljóta með og skapar jafnóðum það sem maður vil hitta. Kenni engum um neitt og tek því sem mætir mér og díla bara við það. Það er eina leiðin í gegnum þetta líf.  Ég hef valið.

Og ég er búin að velja. Svoleiðis verður allt.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 21:15

16 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hættu þessum skrifum í kommentakerfið og drífðu þig að ná í skýrslur barnanna, skila þínum eigin verkefnum, pakka, semja um flutninga, þrífa,  fá þér rauðvín, heimsækja mr z og mrs y í síðasta sinn - í bili - og komdu þér svo heim, heim á klakann, kona. Ekkert slór, ekkert múður og mas, heyrirðu það?! Annars bara ástarkveðja.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.10.2007 kl. 21:51

17 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Oh hvað ég hlakka til að þú skulir koma heim þar áttu heima kús til þín gullið mitt.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.10.2007 kl. 22:19

18 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já Guðný mín. Geri eins og þú segir. Eins og ég vil að allir geri eins og ég segi. Maður verður að standa við orðin

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 22:20

19 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Eldri strákurinn minn átti afmæli í dag og varð 22 ára. Við erum búin að borða mikið og hafa það gott, svo ég er alveg á blístri og get ekki gert neitt annað en að sitja við tölvuna

Þú klárar þetta allt Katrín mín. Tekur bara góða skorpu. Gangi þér vel

Margrét St Hafsteinsdóttir, 8.10.2007 kl. 23:57

20 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Heyrðu Guðný..ég hreinlega las yfir þetta með rauðvínið og var því bara bláedrú í allt gærkvöld sem var kannski bara best þar sem ég hef nóg annað að gera en sveiflast um húsið á einhverju dularfullu djúprauðu hamingjuskýi og með svima.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.10.2007 kl. 09:48

21 Smámynd: josira

Ég skal koma og hjálpa þér...

josira, 9.10.2007 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 310958

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband